Á laugardagskvöld leikur Leiknir sinn stærsta leik í sumar, hingað til. Leiknir er á toppi 1. deildarinnar ásamt Víkingum með 25 stig en Þórsarar koma þar á eftir með 22 stig.
Þór - Leiknir
Þórsvöllur, laugardag klukkan 18:00.
Andstæðingurinn: Þórsarar hafa verulega sprækt og skemmtilegt lið. Það er líkt okkar liði að því leyti að þarna eru margir heimamenn sem eru orðnir reynslunni ríkari og tilbúnir í slaginn á toppnum. Þjálfari liðsins er Páll Viðar Gíslason sem tók við af Lárusi Orra Sigurðssyni fyrr í sumar. Tveir af öflugri leikmönnum Þórs verða í banni á laugardaginn; varnarmaðurinn Atli Jens Albertsson og Jóhann Helgi Hannesson, þeirra markahæsti leikmaður í sumar.
Fyrri leikurinn: Hilmar Árni Halldórsson tryggði Leikni sigur þegar liðin mættust í upphafi sumars. Leiknir vann 1-0 í jöfnum leik.
Smelltu hér til að lesa umfjöllun um leikinn.
Dómarar: Guðmundur Ársæll Guðmundsson fær það verkefni að dæma þennan toppslag deildarinnar. Þegar þessi orð eru skrifuð hefur aðeins einn aðstoðardómari verið skipaður á leikinn, það er Bjarni Hrannar Héðinsson sem var með flautuna þegar KB vann Tindastól um síðustu helgi.
Úr herbúðum Leiknis: Fannar Þór Arnarsson er búinn að vera duglegur að safna spjöldum í sumar og verður ekki með gegn Þór vegna leikbanns. Hilmar Árni sem skoraði í fyrri viðureign liðanna verður ekki heldur með en hann er staddur með 2. flokki á Gothia Cup í Svíþjóð.