Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 22. maí 2010 Share
Sorglegt tap í Víkinni staðreynd
Höf. Valur Gunnarsson

Það er ekki oft sem það sýður á undirrituðum eftir fótboltaleiki en það gerðist því miður í Víkinni í dag. Það sem hefði getað orðið nokkuð jafn og skemmtilegur leikur breyttist í martröð á lokamínútunni þegar dómari leiksins, Halldór Breiðfjörð, sem hefur hvorki hæfileika né líkamlegt form til að dæma leiki sem þennan, dæmdi glórulausa vítaspyrnu á Leiknismenn eftir að Helgi Sigurðsson lét sig falla í vítateignum. Fyrsta tap ársins staðreynd, 1-2.

Eins og fyrr í sumar voru okkar menn nokkuð lengi í gang en voru þó nokkuð þéttir til baka og því var hvorugt liðið að skapa sér nokkuð á fyrstu 20 mínútum leiksins. Ég punktaði fyrsta færi okkar manna ekki niður fyrr en eftir 21 mínútu þegar Aron átti fína aukaspyrnu fyrir sem Dóri skallaði yfir, en í næstu sókn voru Víkingar næstum komnir inn fyrir en þar var Dóri mættur til að bæja hættunni frá.

Fyrsta alvöru færi leiksins áttum við eftir u.þ.b hálftíma leik þegar Kjartan hitti ekki boltann úr nokkuð þröngu færi á markteig eftir góðan undirbúning Arons frá vinstri kantinum. Víkingar fengu líka sín færi en einhvern veginn endaði Víkingur í hættulegu færi eftir útspark hjá Eyjó, sem var alls ekki slæmt, en sem betur fer fyrir okkur fór skotið yfir markið.

Á 43. mínútu leiksins skoraði Kristján Páll svo mark sem var dæmt af vegna rangstöðu. Allt stefndi því í markalausan hálfleik og virtust menn vera búnir að sætta sig við það. Kjartan Andri Baldvinsson var þó á öðru máli því okkar menn fengu hornspyrnu á 46. mínútu og eftir darraðadans í teignum endaði boltinn hjá Kjarra sem hamraði honum í netið af stuttu færi. 0-1 í hálfleik og okkar menn virkuðu í fínu formi.

Ekki voru allir sáttir við þessa framgöngu okkar manna og höfðu menn orð á því að fólkið í Lönguvitleysunni hafi heyrt hálfleiksræðu Leifs Garðarsonar, þjálfara Víkings, enda getur maður ímyndað sér að það sé pressa á góð úrslit í Víkinni, verandi með langdýrasta lið deildarinnar. Leifur virtist þó ekki vera sá eini sem var óhress með stöðu mála því strax í upphafi seinni hálfleiks dæmdi Halldór Breiðfjörð á okkur óbeina aukaspyrnu eftir að boltinn fór í legginn á varnarmanni okkar og þaðan í lúkurnar á Eyjó. Ekki skoruðu Víkingar úr þeirri spyrnunni en í beinu framhaldi af óbeinu aukaspyrnunni fengu þeir aukaspyrnuna sem fyrra markið þeirra kom úr.

Viktor Örn Guðmundsson tók aukaspyrnuna sem var nokkuð úti á kanti. Boltinn virtist fara í gegnum tveggja manna vegg okkar og þaðan í nærhornið. Eyjó og veggurinn hefðu getað gert betur þar. Fyrir ykkur sem voruð ekki á vellinum (og ég held að það var engin myndavél á vellinum) þá getið þið skoðað þetta myndband. Þetta var nákvæmlega eins.

Eftir markið var leikurinn jafn og nokkuð skemmtilegur. Það var ekkert mikið um opin færi en þó fengu bæði lið færi einn á móti markmanni (á sömu mínútunni reyndar) en staðan var áfram 1-1. Ef eitthvað var fannst manni líklegra að okkar menn myndu setj´ann.

Þó að liðin hafi verði nokkuð jöfn verður samt að taka það fram að aðeins eitt lið á vellinum var að reyna að spila boltanum, og það voru Leiknismenn. Ég skal viðurkenna það að ég man ekki eftir að hafa séð lið sem á að vera með besta lið deildarinnar (sama hvaða deild) spila jafn leiðinlegan fótbolta og Víkingar í dag. Nú er ég ekki að reyna að vera leiðinlegur og þetta er ekki skrifað í einhverju svekkelsi, en ég man varla eftir einum spilkafla hjá Víkingi í leiknum sem verður að teljast frekar sorglegt miðað við mannskapinn sem þeir hafa.

Hvað um það. Bæði lið héldu áfram að ógna og við vorum hættulegir í föstum leikatriðum, en Himmi var með nokkra mjög góða bolta inná teiginn í dag.

Þegar allt virtist stefna í sanngjarnt jafntefli tók, eins og áður segir, dómari leiksins málin í sínar hendur. Eftir háloftaspyrnu úr vörn Víkings (ekki í fyrsta skipti í leiknum) lenda Helgi Sigurðsson og Dóri í kapphlaupi um boltann. Þeir eru báðir í baráttu um boltann sem endar á því að Helgi lætur sig falla og Halldór bendir á punktinn og rekur Dóra útaf. Helgi skorar sjálfur úr vítinu og við töpum leik sem við áttum engan veginn skilið að tapa.

Eftir tap eins og í dag verður maður að velta því fyrir sér hvers vegna dómari leiksins, sá ágæti maður Halldór Breiðfjörð, var settur á leik sem þennan. Vissulega er auðvelt að vera vitur eftir á, en því miður er það ekki málið í þessu tilviki því fyrir leik sendi Íþróttafélagið Leiknir athugasemd við það að maðurinn var settur á leikinn. Auðvitað á einhver toppdómari að dæma þennan leik og það er þessi maður alls ekki. Maðurinn er í engu formi og því er ekki nema von að menn missi einbeitinguna í lok leiks eins og hann gerði í dag... því miður.

Það breytir því þó ekki að við töpuðum í dag en þetta er bara einn leikur. Ég var nokkuð stoltur af okkar mönnum í dag. Mér fannst við spila á köflum mjög skemmtilegan bolta og það má ekki vanmeta það að þetta er fyrsti grasleikur okkar síðan í september á síðasta ári. Brynjar Benediktsson spilaði sinni fyrsta leik fyrir okkar menn þegar hann kom inná fyrir Stjána, en Óttar Bjarni og Binni Ó fóru báðir útaf meiddir. Dóri var frábær í vörninni í fyrri hálfleik og flottur í seinni en maður leiksins í dag var Brynjar Óli Guðmundsson, þrátt fyrir að hafa bara spilað í 58 mínútur. Binni hefur verið virkilega flottur í hægri bakverðinum það sem af er sumri og það er vonandi að hann hafi ekki meiðst illa og mæti sterkur í leikinn gegn Skaganum næsta föstudag. Þá má nefna Aron á kantinum sem er alltaf hættulegur í sínum aðgerðum.

Eins og áður segir þá er þetta bara einn leikur og það í 3. umferðinni. Við mætum öll á Leiknisvöll næsta föstudaginn þegar sigurlausir Skagamenn koma í heimsókn á Leiknisvöll.

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Ó (Óli Hrannar), Dóri, Óttar B (Binni Hlö), Steini, Gunni E, Himmi, Fannar, Stjáni (Brynjar B), Aron, Kjarri.
Maður leiksins: Binni Ó
Dómari: Halldór Breiðfjörð, sæmilegur heilt yfir en eyðilagði leikinn.

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com