Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 28. maí 2010 Share
Karaktersigur á bitlausum Skagamönnum
Höf. Valur Gunnarsson

Það var glæsilegt að sjá troðfullan Leiknisvöllinn í kvöld þegar stórveldi ÍA heimsótti heimamenn í Breiðholtið í kvöld. Þrátt fyrir að hafa leikið einum manni færri í 70 mínútur voru það okkar menn sem réðu lögum og lofum á vellinum og sáu til þess að Skagamenn eru enn að leita að fyrsta sigri tímabilsins. 1-0 sigur staðreynd og Leiknisliðið lítur áfram mjög vel út.

Vegna meiðsla og banna var lið okkar nokkuð breytt frá undanförnum leikjum. Dóri var í banni og því færði Gunni Einars sig í miðju varnarinnar, Brynjar Hlöðversson spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik á tímabilinu í hægri bakverði, Kjartan byrjaði á miðjunni fyrir Gunna og Óli Hrannar byrjaði á toppnum. Hafi einhver haft áhyggjur af öllum þessum breytingum var það óþarfi, allir stóðu sig með prýði.

Leikurinn byrjaði rólega og bæði lið voru lítið að skapa sér. Skaginn fékk nokkrar aukaspyrnur sem ekkert kom úr og Aron var nokkuð lipur hjá okkur á kantinum en við vorum fáliðaðir í boxinu þegar fyrirgjafir skiluðu sér. Greinilegt var að bæði lið ætluðu sér ekki að tapa leiknum og maður hafði það á tilfinningunni strax að bæði lið sættu sig við stig úr leiknum.

Eftir 18 mínútna leik fengu Skagamenn aukaspyrnu á hættulegum stað eftir að Óttar Bjarni hafði brotið nokkuð gróflega á einum gulklæddum. Dómarinn sýndi Óttari gula spjaldið fyrir vikið og þar sem þetta var hans annað spjald í leiknum átti hann réttilega að fá það rauða í kjölfarið. Eitthvað virtist dómarinn ekki vera í takt því hann hafði greinilega ekki skráð fyrra spjaldið á Óttar og það var ekki fyrr en aðstoðardómarinn hafði bent honum á að Óttar, sem var fyrirliði okkar í leiknum, hafi verði á spjaldi að dómarinn veifaði rauða spjaldinu. Nokkuð „skondið“ atvik og ekki í síðasta skipti sem aðstoðardómarinn bjargaði dómaranum.

Það var því ljóst að okkar menn áttu á brattan að sækja, enda einum manni færri gegn liði sem var spáð 1. sæti í deildinni í sumar. En það er eins og enginn hafi sagt Skagamönnum að þeir væru fleiri, því við vorum klárlega betra liðið það sem eftir lifði leiks.

Fyrri hálfleikurinn fjaraði út eftir þetta rauða spjald og það gerðist nánast ekki neitt ef undan er skilin síðasta mínúta hálfleiksins. á 44. mínútu átti Aron skot hárfínt framhjá og tveimur mínútum seinna áttu Skagamenn skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu sem Eyjó varði og upp úr því fengum við nokkuð hættulega sókn þar sem Steini renndi boltanum fyrir markið en sóknarmaður okkar (sá ekki hver) var aðeins of stuttur þegar hann renndi sér í boltann.

0-0 í hálfleik og lítið í stöðunni sem benti til annars.

Þegar seinni hálfleikurinn hófst átti maður von á því að Skagamenn myndu bíta meira frá sér, verandi manni fleiri, en sú var ekki raunin og hálfleikurinn var algjör eign okkar manna.

Á 55. mínútu skoraði Óli Hrannar eftir fyrirgjöf frá hægri en þar sem hann sló boltann greinilega með hendinni, ala Maradona, var markið dæmt af - þó ekki fyrr en aðstoðardómarinn hafði bent dómaranum á það. Stuttu seinna fengu Skagamenn svo eina færið sitt í seinni hálfleik þegar fínt spil upp völlinn endaði með hættulegri fyrirgjöf sem rann framhjá öllum í teignum.

Þarna var leikurinn að opnast og bæði lið skiptust á að hafa boltann en við vorum alltaf líklegri til að skora. Fannar stjórnaði miðjunni eins og herforingi, vörnin var að verjast frábærlega og Aron, Stjáni og Óli börðust vel frammi.

Það var svo á 82. mínútu að eina mark leiksins leit dagsins ljós. Brynjar Benediktsson, sem hafði komið inn á fyrir Óla Hrannar, vann með harðfylgni hornspyrnu eftir að hafa sólað sig upp hægri kantinn. Úr hornspyrnunni sendi Aron háan bolta á fjærstöng þar sem Helgi Pjetur Jóhannsson, sem kom inn á fyrir Kjartan, stökk hæst allra og skallaði boltann í nærhornið umkringdur þremur varnarmönnum Skagans. 1-0 og sigurinn var okkar.

Eftir markið fjaraði leikurinn út og ef eitthvað var vorum við líklegri til að bæta við frekar en hitt. 3 stig staðreynd og við því komnir í 2. sætið með 9 stig eftir 4 umferðir, sem verður að teljast ansi skemmtilegt.

Það er erfitt að taka einhvern einn út í dag því það voru allir að spila vel. Það var leiðinlegt að sjá Óttar fá rauða spjaldið í sínum fyrsta leik sem fyrirliði en í staðinn fyrir að leggjast í eitthvað volæði efldust menn við það og stigu allir upp. Ég ætla mér samt að velja mann leiksins og það er að þessu sinni Brynjar Hlöðversson, en Binni var frábær í dag. Baráttan og útsjónasemi hans voru til fyrirmyndar og svo skilaði hann boltanum mjög vel frá sér sem hefur stundum verið ljóður á hans leik.

Þetta var karaktersigur og þó við vorum einum færri vorum við betri allan leikinn. Ég er mjög ánæður með strákana og þetta er eitthvað til að byggja á.
Sigursteinn eftir leik í kvöld.

Næsti leikur Leiknis í deildinni er gegn Þrótti þann 7. júní en í millitíðinni mætum við Stjörnunni í bikarnum á heimavelli okkar, en sá leikur fer fram 3. júní.

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Hlö, Steinarr, Gunni E, Óttar B, Hilmar, Fannar, Kjartan, Aron, Kristján, Óli Hrannar
Maður leiksins: Binni Hlö
Dómari: Þóroddur Hjaltalín JR, ágætur en frekar óspar á spjöldin á okkar menn.

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com