Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 8. júní 2010 Share
Góður seinni hálfleikur dugði gegn Þrótturum
Höf. Valur Gunnarsson

Það voru þó nokkrir Leiknisáhorfendur mættir í Laugardalinn í kvöld í þeirri von að sjá fjórða sigurleik okkar manna í fimm leikjum. Þeim varð að ósk sinni, því Leiknismenn lögðu Þróttara 0-2 þar sem Helgi Pjetur skoraði bæði mörkin í seinni hálfleik.

Steini Gísla gerði fjórar breytingar á liðinu frá síðasta leik gegn Stjörnunni. Fúsi fór í bakvörðinn fyrir Steinarr, en sá síðarnefndi tók út leikbann í leiknum, Helgi Pjetur fór á miðjuna fyrir Kjarra, Brynjar Ben byrjaði frammi í stað Óla Hrannars og Óttar Bjarni kom í liðið fyrir Sigga, sem þýddi að Himmi fór á miðjuna og Binni Hlö í bakvörðinn.

Eins og svo oft áður í sumar fór leikurinn í kvöld rólega af stað. Bæði lið létu boltann ganga rólega sín á milli og sóknaruppbygging liðanna var með rólegra móti. Öfugt við undanfarna leiki voru okkar menn þó betri aðilinn fyrstu 10 mínútur leiksins og kantmenn okkar voru bakvörðum heimamanna oft á tíðum erfiðir.

Það voru þó Þróttarar sem áttu fyrsta færi leiksins þegar sóknarmaður þeirra slapp á 12. mínútu einn í gegn eftir stungusendingu inn fyrir flata vörn okkar, en sem betur fer fyrir okkur fór skot hans hárfínt yfir markið. Skömmu áður en þeir fengu þetta færi bjargaði góður varnarleikur Dóra því að þeir slyppu í gegn og maður hafði það því á tilfinngunni að Þróttur væri nær því að skora en við.

Aron Daníelsson hefur verið í hörkuformi í sumar og ef eitthvað er að marka leik hans í kvöld er það form ekkert að fara að breytast á næstunni. Aron átti hættulegasta „færi“ okkar í fyrri hálfleik þegar hann átti þrumuskot á 18. mínútu fyrir utan teig sem stefndi upp í fjær vinkilinn, en Haraldur Björnsson, markmaður Þróttar, varði með tilþrifum.

Þó að Þróttur hafi ekki skapað sér mörg færi voru þeir meira með boltann og alltaf líklegri en við til að skora það sem eftir lifði fyrri hálfleiksins. Það var því nokkur léttir þegar Gunnar Sverrir Gunnarsson, mjög góður dómari leiksins, flautaði til leikhlés á 46. mínútu. 0-0 í hálfleik.

Hafi Þróttarar verið betri aðilinn í fyrri hálfleik var annað upp´á teningnum í þeim síðari. Það var greinilegt að Steini hafði farið vel yfir málin í hálfleiknum því okkar menn komu grimmir til leiks úr hálfleiknum og nýttu styrkleika sína vel.

Á 55. mínútu leiksins gerist það að Helgi Pjetur og Muamer Sadikovic skalla saman og fara báðir útaf í aðhlynningu. Það fór svo þannig að Helgi kom inná aftur með heljarinnar umbúðir á hausnum en Sadikovic hafði lokið keppni. Þetta var líklega nokkuð áfall fyrir Þróttara því Sadikovic hafði verið góður í leiknum fram að þessu.

Eftir að hafa verið betri aðilinn fyrsta korterið í seinni hálfleik leit fyrsta mark dagsins ljós. Við fengum hornspyrnu á 59. mínútu og Aron sendi háan bolta inn á teig þar sem Helgi Pjetur skallar boltann í jörðina og inn. Helgi hefur sýnt það oft áður hversu hættulegur hann er í teig andstæðinganna og markið í kvöld var keimlíkt marki hans gegn Skaganum um daginn. 0-1.

Eftir markið héldu okkar menn áfram að sækja og það tók þá aðeins 5 mínútur að bæta við öðru marki. Aftur var það Helgi Pjetur að verki, nú með langskoti. Helgi fékk boltann fyrir utan teig frá Hilmari Árna og í staðinn fyrir að prjóna- eða spila sig inn í teiginn skaut Helgi hnitmiðuðu skoti í vinkilinn fjær, óverjandi fyrir Harald í markinu. Glæsilegt mark og staðan orðin 0-2 fyrir okkur og við með öll völd á vellinum.

Eftir seinna markið kom að mínu mati besti kafli okkar í leiknum. Í staðinn fyrir að falla til baka og reyna að halda fengnum hlut héldum við boltanum og héldum áfram að skapa okkur færi. Þar af leiðandi komust Þróttarar aldrei inn í leikinn og við vorum mun nær því að bæta við marki frekar en þeir að minnka muninn, og í raun vorum við óheppnir að svo fór ekki.

Það var því frekar „stresslaust“ Leiknisfólk sem fagnaði vel og innilega með strákunum að leik loknum. Fjórir sigrar í fimm leikjum geta glatt hvaða mann sem er og miðað við seinni hálfleikinn í dag virðist fátt geta stoppað okkur þessa dagana.

Aron heldur áfram að vera hættulegur á kantinum og Stjáni leit virkilega vel út í dag. Vörnin hefur verið hreint frábær fyrir framan Eyjó með Dóra fremstan í flokki og Fannar stjórnar miðjunni eins og herforingi. Brynjar Ben spilaði sinn fyrsta byrjunarliðsleik á Íslandsmóti fyrir Leikni og óx ásmeginn þegar leið á leikinn. En maður leiksins í dag er Helgi Pjetur sem sannar enn einu sinni hvað hann hefur mikið markanef með tveimur góðum mörkum.

Það er skammt stórra högga á milli þessa dagana og næsti leikur Leiknis er gegn Gróttu á heimavelli á föstudaginn. Vonandi mæta sem flestir á völlinn þann daginn.

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Hlö, Fúsi, Óttar, Dóri, Fannar, Himmi, Helgi Pje, Aron, Stjáni, Binni Ben
Maður leiksins: Helgi Pje
Dómari: Gunnar Sverrir Gunnarsson, virkilega góður
Myndir: Fotbolti.net

Viðtal við Steina Gísla eftir leik
Viðtal við Helga Pje eftir leik
Viðtal við Pál Einars þjálfara Þróttar eftir leik

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com