Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 11. júní 2010 Share
Á toppnum eftir erfiðan heimasigur
Höf. Valur Gunnarsson

Það vissu allir Leiknismenn sem mættu á völlinn í kvöld að með hagstæðum úrslitum í 6. umferð 1. deildar karla gætum við farið á toppinn í deildinni. Andstæðingur okkar þetta kvöldið, Grótta, var fyrir leiki kvöldsins í 9. sæti með 4 stig og því áttu eflaust einhverjir von á þægilegum heimasigri. Annað kom á daginn því þrátt fyrir að hafa unnið leikinn 2-1 var hann allt annað en þægilegur.

Fyrsta mark leiksins skoruðu gestirnir á 8. mínútu leiksins. Okkar menn sváfu á verðinum í vörninni og allt opnaðist fyrir Gróttumenn á hægri kantinum þar sem kantmaður þeirra lék óáreittur upp vænginn, sendi boltann fyrir þar sem Magnús Bernhard Gíslason, sóknarmaður Gróttu, skoraði framhjá Eyjó með skoti af markteig. 0-1 og ljóst var að þetta yrði erfiður leikur.

Fram að markinu höfðum við verið meira með boltann og verið heilt yfir líklegri til að skapa eitthvað. Það breytir þó ekki þeirri staðreynd að næsta góða færi leiksins var einnig gestanna því einungis tveimur mínútum eftir markið fengu þeir eiginlega alveg eins færi, en í þetta skiptið fór boltinn rétt framhjá. Greinilegt var að okkar menn voru ekki með hugann við verkefnið.

Það sem eftir lifði hálfleiks voru við áfram meira með boltann án þess þó að ná að skapa einhver dauðafæri. Fannar átti fínt skot í slá og við áttum nokkur „næstum því“ færi þar sem engu munaði að menn kæmust í ákjósanleg færi en allt kom fyrir ekki. Gróttumenn vörðust vel á sínum vallarhelmingi og voru hættulegir í skyndisóknum sínum og það var ljóst að það yrði erfitt að komast framhjá þeim í vörninni.

Sóknaruppbygging okkar í fyrri hálfleik var alltof hæg og þ.a.l. fengum við fá færi. Það fór reyndar svo að tvö síðustu færi fyrri hálfleiksins voru Gróttumanna en í fyrra skiptið varði Eyjó laust skot auðveldlega en á 45. mínútu varði hann meistaralega þegar sóknarmaður Gróttumanna átti gott skot í bláhornið í gegnum þvögu í teignum.

Staðan var því 0-1 í hálfleik og ljóst að við þyrftum að taka okkur verulega saman í andlitinu ef ekki átti illa að fara.

Steini Gísla gerði eina breytingu í hálfleik. Steinarr fór meiddur af velli og í hans stað kom Fúsi í vinstri bakvörðinn. Þetta var þó ekki eina breytingin í hálfleiknum því það var greinilegt að hugarfarið hjá strákunum var nokkuð breytt. Á 48. mínútu var Aron búinn að fá tvö færi og það seinna hefði með réttu átt að vera mark. Eftir að hafa prjónað sig í gegnum vörn Gróttu komst hann einn í gegn en skot hans endaði í stönginni. Þetta var sannkallað dauðafæri því Stjáni var dauðafrír á fjærstöng og var réttilega ósáttur við að fá ekki boltann.

Þrátt fyrir að við höfum skapað okkur fleiri færi í seinni hálfleiknum en þeim fyrri var maður orðinn nokkuð svartsýnn þegar leið á leikinn. Við vorum ekki að spila nægilega vel og eins og í fyrri hálfleiknum vörðust Gróttumenn vel og voru hættulegir í skyndisóknum.

Það fór þó þannig að við skoruðum jöfnunarmarkið og þar var að verki enginn annar en Helgi Pjetur Jóhansson sem skoraði þarna sitt 4. mark í þremur leikjum og það sem meira er; það þriðja með skalla. Eftir gott spil upp völlinn barst boltinn á Hilmar Árna á hægri kanti sem átti góða fyrirgjöf á Helga sem skallaði hann inn. 1-1 og maður var orðinn bjartsýnn aftur.

Eftir markið sóttum við áfram og ég leyfi mér að segja að þrátt fyrir að við höfum ekki verið að spila vel vorum við alltaf líklegri til að vinna leikinn en þeir. Í seinni hálfleik komust Aron og Kristján Páll meira inn í leikinn og þá er alltaf hætta því hættulegri kantmenn eru vandfundnir í 1. deildinni í dag. Aron prjónaði sig ósjaldan upp vinstri kantinn og Stjáni var virkilega hættulegur í sínum aðgerðum á þeim hægri.

Það var ljóst að okkar menn myndu ekki sætta sig við eitt stig í kvöld og sem betur fer þurftu þeir þess ekki því á 84. mínútu fékk Helgi Pjetur boltann á hægri kantinum og átti góða fyrirgjöf á fjærstöng þar sem Stjáni, af öllum mönnum, skallaði boltann í netið. Virkilega vel gert hjá Stjána, en hann byrjaði sóknina þegar hann vann sjálfur boltann á eigin vallarhelmingi. 2-1 og okkar menn á leiðinni á toppinn.

Það sem eftir lifði leiks vorum við áfram hættulegri og fengum við tvær aukaspyrnur á hættulegum stöðum sem nýttust ekki. Þegar maður hélt að leikurinn myndi fjara út fékk Fannar Arnarson sitt annað gula spjald á 88. mínútu og þar með það rauða. Fannar gerðist sekur um klaufalegt brot á miðjum vallarhelmingnum og því verður hann ekki með í stórleiknum gegn ÍR á föstudaginn, en þetta er þriðja rauða spjald okkar manna á tímabilinu.

Sigurinn í kvöld var allt annað en fallegur. Eins og ég sagði í upphafi geta Gróttumenn verið svekktir með þetta tap en ég er þó þeirrar skoðunnar að við vorum betra liðið í leiknum, þrátt fyrir að hafa ekki spilað vel. Það sýnir styrk liðsins að vinna svona leiki en það er vonandi að okkar menn koma betur stemmdir til leiks á föstudaginn þegar við mætum ÍR í Mjóddinni.

Eins og fram hefur komið var liðið ekki nægilega gott í kvöld. Vörnin, sem hefur verið okkar besti „maður“ á tímabilinu var ekki góð í dag og menn virtust ekki ná að gíra sig upp í leikinn eftir góðan útisigur á Þrótti í síðustu umferð. Maður leiksins í dag er að mínu mati Kristján Páll. Hann var sívinnandi á kantinum og ekki nóg með það að hafa skorað sigurmarkið þá bjargaði hann marki hinu meginn á vellinum þegar hann vann boltann í aðdraganda marksins.

Það verður að segjast eins og er að það er ansi gaman að líta á töfluna um þessar mundir. Það má þó ekki gleyma því að mótið er 22 umferðir og því er nóg eftir og menn mega ekki gleyma sér í stöðunni í dag. Næsti leikur er á föstudaginn eftir viku þegar við heimsækjum ÍR-inga í Mjóddina, en ÍR tapaði illa í dag fyrir Fjölni, 4-0. Þeir koma því eflaust dýrvitlausir til leiks og þetta verður sannkallaður stórleikur sem allir verða að sjá.

Lið Leiknis: Eyjó, Steini (Fúsi ´45), Binni Hlö, Óttar, Dóri, Fannar, Himmi (Óli H ´75), Helgi Pje, Aron, Stjáni, Binni Ben (Kjarri ´86).
Maður leiksins: Kristján Páll
Dómari: Leiknir Ágústsson, fínn.

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com