Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 27. júní 2010 Share
Þrjú stig heim og toppsætið okkar
Höf. Þórður Einarsson

Leiknismenn tylltu sér á topp 1.deildar með sigri á KA mönnum í dag. Leiknismenn voru mun betri aðilinn í leik sem var þó alveg grautleiðinlegur framan af. 3-0 sigur þar sem Kristján Páll var í miklu stuði og skoraði tvö mörk og lagði upp eitt sem Brynjar Ben skoraði.

Leikurinn hófst ótrúlega rólega og lognmolla yfir öllu. Áhorfendur létu sig svo að vanda vanta í byrjun leiks en þetta er farið að vera afar hvimleitt á leikjum Leiknis. Mæting er fín þegar upp er staðið en fólk að tínast inn 5-10 mín eftir að leikur er hafinn.

Leiknismenn fengu fyrsta og nær eina færi fyrri hálfleiks. Helgi P fékk þá sannkallað dauðafæri eftir sendingu frá Brynjari Ben á 10 mínútu leiksins. Helgi setti boltann með jörðinni framhjá markinu. Leiknismenn voru eftir þetta líklegri aðilinn en slakar móttökur og hægt spil kom í veg fyrir að einhver sókn yrði að marki.

Síðari hálfleikur var allt önnur músík. Leiknismenn virkuðu sprækari og meiri hraði í þeirra aðgerðum. Það voru þó engu að síður KA menn sem fengu fyrstu hættulegu sóknina þegar David Disztl fékk boltann eftir að hann skoppaði yfir Gunnar Einarsson. David reyndi svo að fiska vítaspyrnu í stað þess að skora og fékk að launum gula-spjaldið. Örskömmu síðar fengu Leiknismenn svo algjört dauðafæri. Helgi P fann Brynjar ben eftir snarpan sprett og Brynjar kominn einn gegn markverði við vítapunkt. En Brynjari mistókst hrapalega að taka við knettinum og missti hann til markvarðarins Sandor Matus. KA menn geystust í sókn og komu með kross þar sem leikmaður þeirra skallaði beint á Eyjólf í markinu úr ágætu færi.

Leiknismenn settu svo fyrsta markið á 62 mínútu í dag eftir góðan sprett Kristjáns Páls Jónssonar. Kristján fékk boltann útá væng og hljóp inn völlinn. Þar hafði hann nokkra góða kosti í stöðunni t.d að gefa knöttinn á samherja sína. Hann tók þó þann kost að hamra á markið þar sem Sandor Matus varði skot hans en sem betur fer fór boltinn í boga yfir Sandor og svo skoppaði boltann yfir línuna þrátt fyrir tilburði Sandors til að ná til knattarins að nýju. Leiknismenn komnir í 1-0.

KA menn lögðu ekki árar í bát. Andri Fannar KA maður átti stórkostlegt skot af löngu færi í stöng einum þrem mínutum eftir markið uppúr innkasti. Þar skall hurð nærri hælum og skömmu síðar aftur var hætta við mark Leiknis. Binni Hlö fékk boltann yfir sig og KA menn við það að sleppa í gegn en taka skot sem Eyjólfur varði vel. En Leiknismenn voru þó enn í bílstjórasætinu. Það var svo á 71 mínútu að Brynjar Ben fékk ágætt færi eftir snarpa sókn. Fannar lék hann inn en skot Brynjars rétt framhjá stönginni af vítateig.

Leiknismenn settu svo sitt annað mark eftir að helgi P fékk boltann á miðjunni lenti í klafsi en stóð það af sér. Hann setti svo boltann yfir á Kristján Pál sem keyrði inní teiginn og lét vaða. Alls ekki besta skot Kristjáns hingað til en Sandor var illa staðsettur og boltinn lak inn. Staðan vænleg 2-0.

Við þessar fréttir var allur vindur úr KA -mönnum og okkar menn fengu fín færi til að bæta við. Kjartan Andri fékk eitt slíkt sem og Fannar Þór en þeim brást bogalistin en Leiknismenn létu þo ekki þar við sitja og bættu við þriðja markinu. Hilmar fékk boltann og gaf hann á Kristján Pál sem flengdi honum fyrir þar sem Brynjar Ben mætti og kláraði færið með pönnunni. 3-0 og dagskráin búin.

Öruggur og sanngjarn sigur í höfn og efsta sætið í deildinni. Leiknismenn spiluðu heldur til hægt í fyrrihálfleik, en settu meira púst í spilamennskuna í þeim síðari. Gestur spilaði sinn fyrsta leik í sumar er hann kom í vinstri bakvörðinn í fjarveru Steinarrs Guðmundssonar sem er meiddur. Gestur stóð sig einkar vel og var traustur. Fannar Þór var að venju sterkur á miðjunni og Aron átti fína spretti þótt hann geti betur en í dag. Kristján Páll var svo allt í öllu í sóknarleiknum að þessu sinni og klárlega maður leiksins.

Leiknismenn verða þó fljótir niður á jörðina því næsta verkefni er handan hornsins. Fimmtudagur 1.júlí er dagurinn en þá skundum við uppí sveit og mætum HK úr Kópavogi. Þeir unnu góðan sigur á Fjölni í gær og ljóst að það verður hörkuleikur.

Leiksskýrslan

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com