Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 13. júlí 2010 Share
Grátlegt tap í leik sumarsins
Höf. Valur Gunnarsson

Fótbolti er grimm íþrótt og því fengu leikmenn og fjölmargir stuðningsmenn Leiknis að kynnast í kvöld þegar liðið tapaði á útivelli gegn Fjölni, 4-3, eftir að hafa komist yfir 2-3 þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Það verður þó að hrósa báðum liðum fyrir líklega skemmtilegasta leik sumarsins og einnig verður að hrósa fjölmörgum áhorfendum Leiknis sem studdu vel við liðið allan leikinn.

Eins og oft áður í sumar byrjuðu okkar menn ekki nógu vel og fyrsti hálftími leiksins var eign heimamanna. Á fyrstu 5 mínútunum voru Fjölnismenn búnir að skapa sér 2 ágæt færi og á 12. mínútu skoruðu þeir fyrsta markið. Þar var að verki Aron Jóhannsson sem skallaði boltann í tómt netið eftir að fyrirgjöf frá vinstri fór yfir allan pakkann. Ekki virtist þetta mark hafa kveikt í okkar mönnum því á næsta korteri héldu þeir áfram að skapa sér færi og við máttum þakka fyrir að vera ekki tveimur til þremur mörkum undir eftir 25 mínútna leik.

Fjölnismenn máttu því vera ansi svekktir á 29. mínútu þegar Kjartan Andri Baldvinsson, sem lék í kvöld sinn besta leik í sumar, lagði boltann yfirvegað í hornið eftir að Aron átti fína sendingu á hann eftir að hafa böðlast af harðfylgi upp vinstri kantinn. Hafi mark Fjölnismanna ekki vakið okkur þá gerði þetta það svo sannarlega því eftir markið skiptust liðin á að sækja og hefðu bæði getað bætt við mörkum fyrir háflleik. Svo fór þó ekki og þegar góður dómari leiksins, Magnús Þórisson, flautaði til hálfleiks var staðan jöfn 1-1 og leikurinn galopinn.

Það er óhætt að segja að okkar menn hafi byrjaði seinni hálfleikinn mun betur en þann fyrri því á 47. mínútu vorum við komnir yfir 2-1 eftir að Fannar hafði skorað úr víti. Stjáni, sem hafði haft hægt um sig í fyrri hálfleik, átti fyrirgjöf sem endaði hjá Binna Ben. Binni átti skot að marki sem Hrafn, markmaður Fjölnis, missti frá sér og endaði svo á að brjóta á Kjarra í baráttunni um frákastið. Víti réttilega dæmt og Fannar skoraði af öryggi og kom okkur yfir.

Adam var þó ekki lengi í paradís því þremur mínútum síðar höfðu Fjölnismenn jafnað. Þar var aftur að verki Aron Jóhannson sem nýtti sér slæm mistök Dóra í vörninni, sem missti hann kæruleysislega frá sér í öftustu línu. Aron fékk boltann því við vítateig okkar og var allt einu einn gegn Eyjó og renndi honum örugglega í fjærhornið. 2-2 og ennþá 40 mínútur eftir af leiknum.

Eftir þetta jöfnunarmark efldust okkar menn til muna og sköpuðu sér fjölda færa næstu mínúturnar. Aron fékk færi einn gegn markmanni en vippa hans í varnarmann fór yfir markið og úr horninu átti Binni Hlö skalla rétt yfir markið. Kjarri komst í fínasta skotfæri við vítateig Fjölnis en var helst til of lengi að athafna sig og náði ekki skoti á markið. Á þessum kafla leiksins fann maður það á sér að okkar menn myndu skora og að lokum fór það svo að Óli Hrannar, sem kom inná fyrir Binna Ben á 77. mínútu, setti boltann í netið.

Markið kom á 84. mínútu en áður en Óli skoraði hefði hann getað verið búinn að skora tvö önnur. Í fyrra skiptið varði Hrafn vel frá honum og í það seinna fór boltinn rétt yfir. Í báðum færunum gerði Óli vel og var óheppinn að skora ekki, en hann var líflegur á þeim mínútum sem hann fékk í kvöld. Eins og góðum framherja sæmir hélt Óli áfram að vera ákveðinn í boxinu og eins og áður segir náði hann að skora á 84. mínútu leiksins.

Kjarri átti enn eina frábæru sendinguna á kantinn þar sem Stjáni tók við boltanum, renndi honum fyrir mark Fjölnis þar sem Óli var mættur á fjær og gerði vel með að setja boltann fast í netið. 3-2 og allt ætlaði um koll að keyra Leiknismeginn í stúkunni, enda eflaust margir sem sáu þrjú stig í hyllingum.

Hafi menn verið byrjaðir að kyrja Vi ligger numer eitt í hausnum var það því miður of snemmt því aðeins tveimur mínútum eftir markið voru Fjölnismenn búnir að jafna. Það mark skoraði Illugi Þór Gunnarsson en það kom eftir klaufalegan varnarleik af okkar hálfu, ekki í fyrsta skiptið í leiknum. Eftir darraðadans í teignum tókst okkur ekki að hreinsa frá marki og því endaði boltinn fyrir framan fæturnar á Illuga sem þakkaði fyrir sig með því að jafna leikinn á 85. mínútu, 3-3.

Dramatíkin var þó ekki enn á enda því þegar vallarklukkan sýndi 90 mín. fengu Fjölnismenn vítaspyrnu eftir að boltinn hafði skoppaði í höndina á Dóra. Á punktinn fór Aron Jóhanns og fullkomnaði hann þrennuna með því að senda Eyjó í vitlaus horn. 4-3 og okkar menn höfðu fullan rétt á að vera svekktir.

Þrátt fyrir sárt tap í kvöld er erfitt að vera pirraður. Bæði lið spiluðu það skemmtilegan bolta að leikurinn var veisla fyrir augað frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Leikurinn var nokkuð kaflaskiptur og því miður voru það Fjölnismenn sem áttu lokaorðið að þessu sinni.

Bestu menn Leiknis voru að mínu mati þeir Kjartan Andri Baldvinsson og Vigfús Arnar Jósepsson, sem kom inná fyrir Himma undir lok fyrri hálfleiks eftir að Himmi hafði meiðst. Kjarri og Fúsi voru báðir skapandi á miðjunni og á meðan Kjarri átti hverja hættulegu sendinguna á eftir annarri var Fúsi öruggur á miðjunni allan þann tíma sem hann var inná. Það neikvæði í dag verður að teljast vörnin en Dóri og Óttar voru nokkuð oft úr stöðum og svo er ekki hægt að líta framhjá mistökum Dóra í allavega öðru markinu.

Hafi sumarið hingað til sannað eitthvað þá er það að okkar menn hafa mikinn karakter og því eiga menn vonandi ekki erfitt með að rífa sig upp fyrir næsta leik sem er á föstudaginn þegar við heimsækjum Njarðvík. Vonandi láta áhorfendur sig ekki vanta þar, en stuðningurinn í kvöld var hreint frábær.

Áfram Leiknir!

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Hlö, Óttar, Dóri, Gestur (Steini), Himmi (Fúsi), Fannar, Kjarri, Aron, Stjáni, Binni Ben (Óli H)
Maður leiksins: Kjarri, skoraði, fiskaði víti og átti stóran þátt í þriðja markinu.
Dómari: Magnús Þórisson, góður

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com