Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 16. júlí 2010 Share
Sigur suður með sjó
Höf. Valur Gunnarsson

Í kvöld héldu okkar menn suður með sjó til að leika við lið Njarðvíkur. Það fór svo að okkar menn báru sigur úr bítum, 0-1, í leik sem fer seint í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi.

Steini Gísla gerði fjórar breytingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik. Gunni Einars fór í hafsentinn fyrir Óttar Bjarna, Steini fór í bakvörðinn fyrir Gest, Fúsi fór á miðjuna fyrir Himma og Óli Hrannar byrjaði frammi í stað Binna Ben. Sjálfur var Steini í leikbanni uppi í stúku.

Það var greinilegt frá fyrstu mínútu að aðeins annað liðið ætlaði sér þrjú stig úr leiknum í kvöld, og það var okkar lið. Njarðvíkingar sóttu á fáum mönnum og leyfðu okkar mönnum að halda boltanum. Þrátt fyrir það sköpuðum við okkur ekki mörg færi þó að nokkrum sinnum hafi litlu munað að við hefðum sloppið í gegn eða náð skoti á markið.

Á 18. mínútu skoruðum við mark en það kom úr fyrsta alvöru færi okkar í leiknum. Gunni átti fína sendingu á Kjarra á miðjunni sem vippaði boltanum innfyrir vörn Njarðvíkinga þar sem Fúsi var mættur og læddi boltanum framhjá Ingvari Jónssyni markmanni heimamanna. Virkilega fínt mark og staðan orðin 1-0 okkur í vil.

Ekki færðu heimamenn sig mikið framar á völlinn eftir markið heldur héldum við áfram að stjórna leiknum. Eina hættan sem skapaðist við mark okkar í fyrri hálfleik var þegar Gunni Einars missti boltann klaufalega í öftustu línu en Dóri bjargaði því að sóknarmaður Njarðvíkur næði skoti á markið með tæklingu á síðustu stundu.

Síðasta færi hálfleiksins leit dagsins ljós á 41. mínútu þegar Kjarri og Fúsi spiluðu boltanum skemmtilega á milli sín við vítateig Njarðvíkur sem endaði með fínu skoti frá Kjarra en Ingvar varði glæsilega í markinu.

Við höfðum því 0-1 forystu í hálfleik og það var lítið í stöðinni sem virtist ætla að ógna þeirri forystu.

Hafi fyrri hálfleikurinn verið rólegur þá var sá seinni enn rólegri því fyrir utan tvo skalla frá þeim Dóra og Binna Hlö sem sigldu rétt yfir markið gerðist afskaplega lítið í hálfleiknum. Njarðvíkingar færðu sig þó framar á völlinn og um miðjan hálfleikinn var eins og þeir ætluðu að fara að ógna okkur en langar spyrnur þeirra sköpuðu sjaldnast einhverja hættu og enduðu nánast undantekningarlaust í lúkunum á Eyjó eða í markspyrnu.

Eins og í fyrri hálfleik vorum við meira með boltann en, eins og áður, náðum við ekki að skapa nógu hættuleg færi. Fannar sólaði í byrjun hálfleiksins nokkra í teig andstæðinganna en síðasta snertingin sveik hann og Stjáni átti tvisvar fína krossa á Aron sem náði ekki nægilega föstum skalla á markið.

Þegar u.þ.b. tíu mínútu voru eftir af leiknum fóru Njarðvíkingar að dæla boltanum inná teiginn en eins og áður segir myndaðist sjaldnast hætta þó að hugsanlega hafi einhverjir fengið hnút í magann í nokkrum tilfellum, enda er eins marks forysta ekki þægileg þegar lítið er eftir. Við héldum þó þessari forystu út leikinn og þegar Einar Örn Daníelsson, sæmilegur dómari leiksins, flautaði af var ljóst að okkar menn voru komnir aftur á toppinn, a.m.k. þangað til á morgun.

Leikurinn í kvöld var allt annað en skemmtilegur en það breytir því ekki að við fáum jafn mörg stig fyrir þennan sigur eins og aðra. Nú fer hvert stig að telja og því var það kærkomið að fara með þrjú af Suðurnesjunum og það er aldrei auðvelt að spila við lið eins og Njarðvík, en okkar menn þurfa að vera beittari í næstu leikjum ætli þeir sér þrjú stig í þeim líka.

Næsti leikur okkar manna er toppslagur við Þórsara á Akureyri. Leikurinn er á laugardaginn kemur og hefst hann klukkan 18:00.

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Hlö, Steini, Dóri, Gunni E, Fannar, Fúsi, Kjarri (Himmi), Aron, Stjáni, Óli H. (Binni Ben)
Maður leiksins: Dóri. Var virkilega öruggur í sínum aðgerðum.
Dómari: Einar Örn Daníelsson, sæmilegur.

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com