Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 24. júlí 2010 Share
Leik lokið: Þór - Leiknir 1-0
Höf. Elvar Geir Magnússon

Leiknir.com er með beina textalýsingu frá Þórsvelli á Akureyri þar sem Þór og Leiknir eigast við í toppslag í 1. deild karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 á laugardagskvöld.

Þórsvöllur:
Þór - Leiknir 1-0
1-0 Sveinn Elías Jónsson (47.)

Ýtið reglulega á refresh (F5 á lyklaborðinu) til að uppfæra síðuna



Leik lokið - Þórssigur. Því miður vorum við alltof bitlausir fram á við og það skorti sárlega áræðni.

91.mín: Kominn uppbótartími og leikurinn fer fram á okkar vallarhelmingi þessa stundina.

88.mín: Kjarri með góða hornspyrnu beint á kollinn á Binna Hlö sem náði ekki góðum skalla og yfir fór boltinn. Fínt færi.

86.mín: Í hreinskilni sagt eru engin teikn á lofti um að við munum ná að jafna þennan leik... en allt getur gerst.

85.mín: Kári mættur aftur inná.

84.mín: Kári Einarsson þarf aðhlynningu. Ekki í boði að vera meiddur núna. Skiptingarnar búnar.

80.mín: Hefur skort bit í sóknarleikinn í þessum leik. Stjáni verið skástur fram á við. Aron Fuego og Óli Hrannar áttu ekki góðan dag og eru báðir farnir af velli. Breytingarnar sem hafa verið gerðar hafa þó ekki náð að koma með meira bit í sóknina enn sem komið er.

73.mín Skipting: Kári Einarsson kominn inn fyrir Aron Fuego. Fyrsti leikur Kára í sumar. Fuego var ekki líkur sjálfum sér í þessum leik.

72.mín: Lítið í gangi... eitthvað sem Þórsurum leiðist væntanlega ekki. Mikið af feilsendingum innan Leiknisliðsins.

66.mín Skipting: Ólafur Hrannar Kristjánsson fer af velli og inn kemur Brynjar Óli Guðmundsson. Binni Hlö fer á miðjuna og Brynjar Óli beint í bakvörðinn. Kjartan Andri færist í senterinn.

64.mín Skipting: Helgi Pjetur Jóhannsson er kominn inn sem varamður fyrir Gunnar Einarsson.

64.mín: Gunni Einars hættulegur í teignum eftir hornspyrnu en Björn Hákon í marki Þórs náði að blaka boltanum í horn. Ekkert kom úr horninu.

62.mín: Sigurður Marínó Kristjánsson nálægt því að skora fyrir Þór en framhjá fór boltinn.

60.mín: Óli Hrannar komst í hörkufæri en var ekki alveg ákveðinn í því hvað hann átti að gera og Þórsarar náðu að verjast. Stuttu seinna fékk Kjarri einnig gott færi en markvörður Þórs varði vel.

58.mín: Leiknir heldur boltanum vel innan liðsins og er að reyna að skapa sér færi... það er þó að ganga erfiðlega.

53.mín: Leiknisliðið hefur ekki jafnað sig á því að fá þetta mark í andlitið og Þórsarar hefðu hæglega getað bætt við öðru marki.

47.mín: Mark! Hræðileg byrjun á seinni hálfleik. Þórsarar komast yfir strax í upphafi hans. Sveinn Elías Jónsson með skot fyrir utan teig sem endaði í netinu.

46.mín: Seinni hálfleikur hafinn - Leiknismenn fá núna að sækja í átt að markinu þar sem Ögmundur Ólafsson, HK-ingur, skoraði sjálfsmarkið fræga.

18:59 Maggi Pera er að sjálfsögðu á vellinum í sumarskapi. Hann ræddi málin við gesti og gangandi í hálfleiknum.


18:56 Stórdómarinn Gunnar Jarl Jónsson hringdi og heimtaði að fá sína spá inn. Hann spáir 0-1. Fyrir þá sem vilja berja Gussa augum verður hann með flautu á Stöð 2 Sport annað kvöld.

18:54 Það er ekki hægt að kvarta yfir veðrinu hér á Akureyri. Brakandi blíða... nú þurfum við bara mörk í seinni hálfleikinn, Leiknismörk.

Hálfleikur - Það er kominn hálfleikur hér á Þórsvelli. Staðan markalaus og jafnræði með liðunum.

44.mín: Styttist í hálfleik og ekkert sem bendir til þess að við fáum mark fyrir leikhlé.

38.mín: Leiknisliðið verið talsvert sterkara að undanförnu og er líklegra í augnablikinu.

37.mín: Fékk eina löglega spá senda í SMS-i rétt fyrir lokun kjörstaða. Kjartan Örn, lykilmaður SÁ, spáir 0-2. Hann spáir því að nafni sinn og Óli Hrannar setji mörkin.

32.mín: Fúsi skaut beint í vegginn. Leiknisliðið er nú ekki frægt fyrir aukaspyrnumörk, það var síðast Atli Þór Sigurðsson sem skoraði mark beint úr aukaspyrnu fyrir Leikni.

32.mín: Fáum aukaspyrnu á ákjósanlegum stað...

31.mín: Besta sókn Leiknis í nokkurn tíma. Óli Hrannar gerði vel og átti flotta sendingu á Kjarra sem var ekki nægilega áræðinn. Stuttu eftir það sparkaði Þorsteinn Ingason, fyrirliði Þórs, boltanum klaufalega upp í hendina á sér rétt fyrir innan teig en dómarinn dæmdi ekkert.

26.mín: Eftir líflega byrjun hefur dregið úr sóknarmætti okkar manna. Stjáni er frískastur í sóknarleiknum en Aron Fuego og Óli Hrannar hafa ekki náð að koma sér í takt við leikinn enn sem komið er.

19.mín: Garðar Gunnar Ásgeirsson segir að leikurinn endi 1-2. Óli Hrannar með bæði. Hættum hér eftir að taka við spám.

17.mín: Ágætis fjöldi af Leiknisfólki meðal áhorfenda. Sjonni, Steini og Loftur voru að fá sér sæti í veðurblíðunni.

15.mín: Þórsarar hafa náð að koma sér betur inn í leikinn og hafa verið með tökin síðustu mínútur.

13.mín: Valur Gunnarsson spáir mögnuðum leik sem endi með jafntefli 4-4!

11.mín: Fyrsta hættan við mark Leiknis sem endaði með því að hreinsað var í horn. Eftir hornspyrnuna dansaði boltinn á línunni, sýndist það vera Dóri sem bjargaði á marklínu. Fjörleg byrjun.

9.mín: Stefán Ingi Gunnarsson er handviss um að leikurinn endi 0-1. Óli Hrannar skori markið sem ráði úrslitum.

7.mín: Leiknismenn byrja talsvert betur. Fúsi með skot af löngu færi úr aukaspyrnu sem markvörður Þórs varði í horn. Óli Hrannar skallaði framhjá eftir hornið.

5.mín: Atli Þór Sigurðsson, miðvörður KB, spáir 2-0 sigri Leiknis. Óli og Dóri með mörkin.

3.mín: Leiknismenn áttu fyrsta færi leiksins. Kristján Páll með skot naumlega framhjá eftir sendingu Ólafs Hrannars.

1.mín: Leikur hafinn - Þórsarar sækja í átt að markinu þar sem Ögmundur Ólafsson skoraði sjálfsmarkið fræga.

18:00 Arnar Ólafsson spáir 0-2. Gunni Einars með fyrra og Helgi Pjetur það seinna. Hann færir mér líka þær fréttir að Alfreð lagði af stað úr Mosó 15:30! Vel gert!

17:59 Liðin eru komin út. Þetta fer að hefjast.

17:57 Alfreð er í stúkunni! Meistari Alfreð Alfreðsson er mættur að styðja Leiknisliðið. Það er því ljóst að Guðmundur Ársæll dómari á erfitt kvöld í vændum.

17:55 Þórsararnir Atli Jens Albertsson og Jóhann Helgi Hannesson sem eru í leikbanni eru í stúkunni í eðlubúningum! Það er víst regla að þegar leikmenn Þórs eru í banni í heimaleik þurfa þeir að vera í eðlubúningum. Eðlilegt.

17:51 Eins og fram hefur komið þá er Brynjar Benediktsson veikur og því ekki með í kvöld, fylgist hann því með gangi mála heima í stofu. Hann spáir 1-2... Kjarri og Stjáni með mörkin.

17:48 Leiknismenn að hita upp á Þórsvelli.


17:41 Þórsarar hafa enn ekki tapað á heimavelli sínum í sumar, unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. Leiknisliðið hefur aðeins unnið tvo útileiki. Tölfræðin er því ekki með okkur í kvöld en tölfræðin spilar ekki fótboltaleiki.

17:38 Leikmenn eru að hita upp á fullri ferð. Athygli vekur að klæðnaður Gunna Einars er talsvert þrengri en hjá öðrum leikmönnum í upphituninni... kemur samt ekkert mjög á óvart.

17:36 Meðal þeirra sem fylgjast með þessari textalýsingu er Ragga mamma hans Dóra. Hún fær að sjálfsögðu hlýjar kveðjur að norðan.

17:33 Þegar liðin mættust í fyrri umferðinni vann Leiknir 1-0 sigur á Leiknisvellinum. Dúllan okkar hann Hilmar Árni Halldórsson skoraði þá eina markið. Hann er ekki með í kvöld þar sem hann er staddur í Svíþjóð.

17:30 Ég tek við spám fyrir leikinn gegnum Facebook. Luca Carrella, leikmaður KB, spáir 2-1 útisigri Leiknis í kvöld. Hann telur að Stjáni og Óli Hrannar skori mörk okkar manna.

Byrjunarlið Þórs: Björn Hákon Sveinsson (m), Aleksandar Linta, Ármann Pétur Ævarsson, Nenad Zivanovic, Þorsteinn Ingason, Sveinn Elías Jónsson, Ottó Hólm Reynisson, Guiseppe Funicello, Gísli Páll Helgason, Sigurður Marinó Kristjánsson, Atli Sigurjónsson.

Byrjunarlið Leiknis 4-3-3: Eyjólfur Tómasson (m); Brynjar Hlöðversson, Óttar Bjarni Guðmundsson, Halldór Kristinn Halldórsson, Steinarr Guðmundsson; Gunnar Einarsson, Vigfús Arnar Jósepsson, Kjartan Andri Baldvinsson; Kristján Páll Jónsson, Aron Fuego Daníelsson, Ólafur Hrannar Kristjánsson.

17:09 Óttar Bjarni í klefanum að lesa eitthvað virt tímarit.



17:07 Eyjó fann mynd af sjálfum sér í salakynnum Þórsara.



17:05 Óli Hrannar er í byrjunarliðinu í kvöld, er í fremstu víglínu. Á myndinni má sjá hann beran að ofan fyrir utan félagsheimili Þórs fyrir örfáum mínútum.



17:00 Það er mikil veðurblíða hér á Akureyri, um 18 gráðu hiti og logn. Dómaratríóið er mætt á völlinn og skoðar aðstæður. Þeir fá fylgd frá milliríkjadómaranum Þóroddi Hjaltalín Jr. sem er klæddur í Þórsgallann.

16:54 Hópurinn er mættur til Akureyrar í öllu sínu veldi. Ferðin gekk verulega vel en farið var í smárútu og einum einkabíl. Steinarr og Stjáni voru mættir norður á undan. Yfirritaður fékk sér Brynju-ís fyrir leik og bragðaðist hann prýðilega.



10:25 Breyting hefur orðið á hópnum hér að neðan. Brynjar Benediktsson er veikur og inn fyrir hann kemur nafni hans, Brynjar Óli Guðmundsson.

10:00 Farið verður akandi til Akureyrar og mun Steini Gísla sjálfur sjá um að keyra rútuna. Textalýsing að norðan mun hefjast tæpum klukkutíma fyrir leik.

09:57 Bendi á viðtalið við Dóra hér að neðan sem tekið var fyrir æfingu í gær. Einnig má sjá leikmannahópinn sem fer norður, ber helst athygli að þar er Kári Einarsson í fyrsta sinn í sumar en hann er loks að jafna sig af meiðslum.

Fannar Þór Arnarsson er ekki með Leikni í kvöld þar sem hann er búinn að vera duglegur að safna spjöldum og tekur út leikbann. Tvo sterka pósta vantar í lið Þórs vegna leikbanna, Atla Jens Albertsson og Jóhann Helga Hannesson.

Haukamaðurinn Guðmundur Ársæll Guðmundsson (B-dómari) fær það verkefni að dæma þennan toppslag deildarinnar. Aðstoðardómarar eru Bjarni Hrannar Héðinsson og Haukur Erlingsson.

Leikmannahópur Leiknis: Eyjólfur Tómasson (m), Gestur Ingi Harðarson, Halldór Kristinn Halldórsson (f), Brynjar Hlöðversson, Óttar Bjarni Guðmundsson, Gunnar Einarsson, Steinarr Guðmundsson, Vigfús Arnar Jósepsson, Helgi Pjetur Jóhannsson, Kjartan Andri Baldvinsson, Sigurður Helgi Harðarson, Aron Fuego Daníelsson, Kristján Páll Jónsson, Brynjar Benediktsson, Ólafur Hrannar Kristjánsson, Kári Einarsson.



Staðan í toppbaráttunni fyrir leikinn:



Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com