Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 27. júlí 2010 Share
Leiknismenn fá Víkinga heim í sex stiga leik
Höf. Þórður Einarsson

Leiknismanna býður það skemmtilega verkefni að mæta Víkingum á morgun, miðvikudag á Leiknisvelli. Víkinga sitja sem stendur í 1.sæti 1.deildar karla og hafa unnið hvern seiglu-sigurinn á fætur öðrum. Leiknismenn fengu að lúta í gras gegn Þór í síðustu umferð og sitjum við því í 3.sæti 1.deildar sem stendur.

Leiknir - Víkingur R

Leiknisvöllur, miðvikudag kl. 20.00

Andstæðingurinn: Víkingur Reykjavík hefur á að skipa afar vel-mönnuðu liði enda kostar það sennilega svipað og helmingur liðanna í 1.deild til samans. Fyrir einn Helga Sig gætu sennilega flest liðin í deildinni rekið deildina sína.
Helstu leikmenn Víkinga eru áður nefndur Helgi Sig sem er gríðarlega duglegur og öflugur senter sem hefur marga ölduna sopið í boltanum. Hann er þó gjarn á að henda sér niður og fá ókeypis aukaspyrnur útá nafnið eitt saman. Milos glagovac er sterkur miðvörður sem kann leikinn svo sannarlega. Hann á það þó til að væla og skæla í leikjum sem er óþolandi löstur í hans leik. Kristinn Magnússon er svo á miðjunni og þar fer reynslumikill leikmaður sem spilar vel frá sér og Þorvaldur Sveinn er einnig áhugaverður leikmaður en hann er lúnkinn og skemmtilegur á velli. Leiknismennirnir Pétur Örn Svanssson og Jakob Spangsberg leika svo einnig með Víkingum en þeir og þeirra stykur er öllum Leiknismönnum vel kunnugur.

Af ungum leikmönnum bera hæst Tómas Guðmundsson sem leikið hefur í bakverðinum uppá síðkastið og Sigurður Egill Lárusson sem er bróðir Dóru Maríu landsliðskonu. Hann er með skemmtilegan vinstri fót og á framtíðina fyrir sér.

Dómari: Leiknir Ágústsson fær það verðuga verkefni að dæma þennan stórleik. Ljóst er að mikið mun mæða á kappanum og vonandi að honum gangi vel.

Leiknisliðið: Hilmar Árni er snúin til baka frá Svíþjóð og Fannar Arnarsson er komin til baka úr banni. Það er ljóst að hópurinnn styrkist bara við þessi tíðindi. Kári Einarsson er aftur á móti dottinn út að nýju í meiðsli og leikur ekki meira í sumar.

Nú mæta allir á völlinn og styðja okkar menn til sigurs, hið bláa, rauða og góða sigrar með okkar stuðning. Áfram Leiknir!

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com