|
|
|
|
|
Knattspyrnufélag Breiðholts - 28. júlí 2010
|
Share
|
|
Í sterkri stöðu eftir stórsigur gegn Grundarfirði
|
|
Höf. Elvar Geir Magnússon
|
KB er nú aðeins skrefi frá úrslitakeppni 3. deildar þrátt fyrir að eiga þrjá leiki eftir í riðlinum. Úrslit gærkvöldsins gera það að verkum. KB vann 4-0 sigur á Grundarfirði á heimavelli þar sem öll mörkin komu í seinni hálfleik.
Það var ansi vel mætt á Leiknisvöllinn í gær, vel yfir 100 manns létu sjá sig á leiknum. KB gat teflt fram mjög sterku liði og var notast við hið hefðbundna 4-4-2 leikkerfi.
Valur (m)
Óli Jóns (f) - DSJ - Andri - Jójó
Siggi KR - Ingþór - Sævar - Gummi
Stebbi - Doddi
KB var með boltann u.þ.b. 75% af fyrri hálfleik en náði þó ekki að setja mark. Grundarfjörður fékk eitt dauðafæri í hálfleiknum sem Valur varði meistaralega. Staðan markalaus að loknum fyrri 45 mínútunum.
Í seinni hálfleiknum fann KB loks leiðina í markið. Þórður Einarsson kom KB yfir strax á 46. mínútu og eftir það var þetta aldrei spurning. Gunnar Wigelund opnaði markareikning sinn fyrir KB í sínum öðrum leik. Hann kom inn sem varamaður og skoraði með sinni fyrstu snertingu.
Þórður bætti svo við sínu öðru marki og lokaorðið átti Stefán Ingi Gunnarsson. Úrslitin 4-0. Fínasta frammistaða og flottur sigur. Mörkin hefðu þó vel getað orðið fleiri en markagræðgin var því miður aðeins of mikil hjá sumum sem reyndu skot úr erfiðri stöðu í stað þess að renna boltanum á lausan samherja.
KB hefur nú sex stiga forystu á Skallagrím sem er í öðru sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Liðið er í flottri stöðu og getur tryggt sér sætið í úrslitakeppninni í næsta leik sem verður gegn Ými í Fagralundi helgina eftir Verslunarmannahelgina.
Staðan í riðlinum - Tvö efstu liðin komast í úrslitakeppnina
KB - Grundarfjörður 4-0
1-0 Þórður Einarsson (46.)
2-0 Gunnar Wigelund (70.)
3-0 Þórður Einarsson (75.)
4-0 Stefán Ingi Gunnarsson (81.)
Dómari: Magnús Helgi Guðmundsson, dæmdi mjög vel. Á einhvern óskiljanlegan hátt náðu Grundfirðingar samt að vera vælandi nánast allan leikinn.
Smelltu hér til að skoða skýrsluna frá leiknum
|
|
|
|
|
|
|
|
| Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 |
Getraunanúmer Leiknis er 111 |
| © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com |
|