Nýskrá  |  Innskráning  |  8. september 2010 
Meistaraflokkur karla - 28. júlí 2010 Share
Mikilvæg þrjú stig í toppslagnum
Höf. Valur Gunnarsson

Þeir fjölmörgu áhorfendur sem mættu á völlinn í kvöld vissu allir hvað það var mikilvægt fyrir Leiknisliðið að ná í þrjú stig þegar topplið Víkings kom í heimsókn. Sem betur fer virtust leikmenn okkar vita það líka því leikurinn endaði 2-0 fyrir okkar menn sem börðust grimmilega fyrir sínu í kvöld.

Það er óhætt að segja að leikurinn hafi byrjað fjörlega því eftir aðeins 45 sekúndur höfðu okkar menn fengið tvö góð færi. Fyrst pressaði Helgi bakvörð víkinga sem endaði með því að skot hans úr vítateig var varið og strax í kjölfarið átti Aron skot í slá eftir góðan undirbúning Stjána. Boltinn skoppaði í jörðina og hef ég það eftir nokkrum (flestir Víkingar) að boltinn var inni, a-la Lampard, en fínir dómarar leiksins sáu það ekki.

Hafi létt yfir einhverju Leiknisfólki eftir þessi tvö færi var sú gleði eflaust skammvinn því eftir fimm mínútna leik voru Víkingar búnir að fá tvö dauðafæri. Í fyrra færinu varði Eyjó meistararlega þegar Helgi Sig átti skot rétt fyrir utan markteig, en Eyjó hafði reyndar misreiknað boltann og var úr stöðu þegar Helgi náði skotinu, en sem betur fer kom það ekki að sök því Eyjó gerði virkilega vel að ná til boltans. Hafi þetta verið dauðafærið var seinna færi Víkinga þessar fyrstu mínútur dauðadauðafæri því þá fékk Dofri Snorrason boltann einn á móti marki eftir undirbúning frá Helga, en með Steina í bakinu skaut Dofri boltanum á einhvern óskiljanlegan hátt framhjá.

Eftir þessar fjörugu upphafsmínútur hægðist nokkuð á leiknum og leikurinn einkenndist af mikilli baráttu en þó fannst manni við vera líklegri til að skapa eitthvað. Um miðjan fyrri hálfleikinn sóttum við nokkuð hart að marki Víkinga og fékk Aron tvö færi á sömu mínútu en náði í hvorugt skiptið að koma boltanum yfir línuna. Skömmu síðar kom þó fyrsta markið og var þar að verki Kjartan Andri Baldvinsson sem spilaði frammi í fyrsta skipti í nokkurn tíma.

Markið var hið glæsilegasta því eftir frábært spil útá velli átti Fúsi háa sendingu á Helga Pje sem skallaði boltann fyrir Kjarra sem tók hann með sér og kláraði færið yfirvegað á móti Magnúsi í marki Víkings. Virkilega vel gert og við komnir með forystu, 1-0.

Eftir markið, sem kom á 28. mínútu, og fram að hálfleik voru Víkingar sterkari aðilinn í leiknum og við féllum helst of langt niður. Þeir náðu ekki að skapa sér mörg færi gegn frábærri vörn okkar manna, með Gunna Einars fremstan í flokki, en þó áttu þeir tvo hættulega skalla áður en flautað var til hálfleiks. Fyrri skallinn fór rétt framhjá en seinni skallann varði Eyjó með tilþrifum. Þann skalla átti Jakob nokkur Spangsberg en þegar boltinn virtist vera að hafna í samskeitunum notaði Eyjó alla sína sentimetra til að teygja sig í boltann og blaka honum frá. Frákastinu náði Helgi Sig en Fannar náði að lokum að bjarga á marklínu. Staðan var því 1-0 í hálfleik.

Hafi einhver haft áhyggjur af því að okkar menn myndu falla til baka og reyna að halda fengnum hlut í seinni hálfleik voru þær áhyggjur óþarfar því Víkingur fékk ekki eitt færi í seinni hálfleiknum og Leiknir var alltaf líklegra til að bæta við heldur en þeir að jafna.

Strax í upphafi hálfleiksins fékk Binni Hlö gott skotfæri en skaut yfir markið og 10 mínútum seinna var Stjáni of óeigingjarn þegar hann sendi á Binna í stað þessa að skjóta í fínu skotfæri.

Stjáni bætti þó upp fyrir það með því að skora annað mark leiksins á 65. mínútu. Binni Hlö átti þá langa sendingu upp völlinn og Stjáni elti hægfara varnarmann Víkinga uppi, náði boltanum og var þá kominn einn gegn markmanni Víkings. Eftir að skot á markið var varið potaði Kjarri boltanum til Stjána sem skoraði framhjá varnarmönnum Víkinga sem höfðu raðað sér upp á línunni. 2-0 og allt varð vitlaust í stúkunni.

Eftir þetta var aldrei spurning hvar sigurinn myndi lenda. Þó að Víkingur hafi verið meira með boltann náðu þeir ekki að skapa sér neitt og í raun vorum við áfram líklegri til að bæta við. Óli Hrannar og Óttar Bjarni, sem báðir komu sterkir inn af bekknum, fengu báðir fín færi til að bæta við marki og á 90. mínútu var brotið á Óla innan teigs og fengum við réttilega dæmda vítaspyrnu. Á punktinn steig Fannar Arnarsson en vippa hans beint á markið var auðveldlega gripin af Magnúsi í markinu, Steina Gísla til ómældrar ánægju.

Þetta kom þó ekki að sök því 2-0 sigur varð staðreynd og okkar menn komnir aftur á fullt í toppbaráttuna.

Það er ekki erfitt að vera jákvæður eftir svona leik. Allt liðið var að spila vel og baráttan og greinilegur vilji leikmanna var til fyrirmyndar. Eftir frekar erfiða byrjun steig vörnin upp og var frábær í leiknum og þá má ekki gleyma markvörslu Eyjó. Miðjan var virkilega flott og kantar og sókn alltaf hættuleg. Maður leiksins í kvöld var þó óumdeilanlega Gunnar Einarsson, en ég man ekki eftir öðrum eins leik lengi. Hann hélt Helga Sig niðri allan leikinn og var, ásamt allri vörninni, virkilega traustur þegar mest á reyndi, enda sköpuðu Víkingar sér ekki eitt færi í seinni hálfleik, eins og áður hefur komið fram.

Þessi grein væri ekki fullkláruð ef ekki væri talað um áhorfendur, en líklega var farið langt með að slá aðsóknarmet á Leiknisvöll í kvöld og var verulega gaman að sjá hve margir mættu að hvetja sitt lið, bæði Víkingar og Leiknismenn.

Næsti leikur okkar er erfiður útileikur á Skaganum föstudaginn 6. ágúst og vonast maður að sjálfsögðu að sjá sem flest Leiknisfólk þar. Áfram Leiknir!

Lið Leiknis: Eyjó, Binni Hlö, Steini, Dóri, Gunni E, Fannar, Fúsi, Helgi Pje (Óttar B), Aron (Binni Ben), Stjáni, Kjarri (Óli H)
Maður leiksins: Gunni Einars
Dómari: Leiknir Ágústsson, góður en svolítið ósanngjarn í spjöldunum

Dominos Pizza
Íslandsbanki
Hekla
Leiknir á Facebook
Sýn - Besta sætið
Jafnréttisstefna Leiknis
Errea
Fótbolti.net - þar sem boltinn rúllar
Leiknislagið
Carlsbergdeild
  Íþróttafélagið Leiknir - Austurbergi 1 - 111 Reykjavík - s: 557-8050 - fax: 5578025 Getraunanúmer Leiknis er 111  
  © Leiknir.com - Öll efnistaka af vefnum er leyfileg svo framarlega sem uppruna er getið með tengli á leiknir.com