Jafnrétti
Allir hafa jafnan rétt og tækifæri til að stunda íþróttir. Það ætti að vera eitt megineinkenni í íþróttastarfi. Hvort sem um er að ræða æfingar eða keppni. Einstaklingur á rétt á að vera metinn af eigin verðleikum en ekki vegna uppruna, þjóðfélagsstöðu, litarháttar eða kyns.
Það er óumdeilt að íþróttir hafa uppeldislegt, menntalegt og heilsufarslegt gildi fyrir þá sem þær stunda. Því er mikilvægt að íþróttafélögin séu meðvituð um ábyrgð sína og áhrifamátt hvað þetta varðar og tryggi að allir hafi þar sambærilega möguleika.
Stúlkur taka minni þátt en strákar í íþróttastarfi og brottfall þeirra er meira en stráka. Það þarf því að taka tillit til og miða tilboð og þjónustu við þarfir iðkenda af báðum kynjum. Bæði kyn skulu höfð í huga við alla ákvarðanatöku, hvort sem um er að ræða stórar eða litlar ákvarðanir.
Jafnréttisvinna verður þannig eðlilegur hluti allra sem starfa að stjórnsýslu, s.s. þjálfun og rekstri íþróttafélaga.
Stjórn Íþróttafélagsins Leiknis