Fara á efnissvæði
IS EN PL
20220412 162022
Fréttir | 14.04.2022

5 kallaðir til í hæfileikamótun KSÍ

5 drengir úr 4. flokki voru í vikunni kallaðir til æfinga í hæfileikamótun KSÍ.

Þetta eru hópæfingar þar sem knattspyrnusambandið fær tækifæri til að skoða hvaða leikmenn eru að koma upp í uppeldisstarfi félaganna og gætu mögulega verið klárir í U-landsliðsumhverfið á næstu árum. 

Það voru þeir Karan, Egill Ingi, Steinn Aziz, Adam og Axel Örn sem fengu kallið að þessu sinni. 

Við óskum þessum drengjum til hamingju með þennan áfanga og fylgjumst auðvitað áfram með þeirra framförum á vellinum.