Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiknir Viktor Freyr
Fréttir | 21.04.2023

6. flokkur Leiknis tók þátt í TM mótinu

Strákarnir í 6. flokki Leiknis tóku þátt í TM móti Stjörnunnar í dag. Leiknir senti 3 lið til leiks að þessu sinni og hétu þau í höfuðið á þremur leikmönnum meistaraflokks Leiknis þeim Viktori Frey, Andi Hoti og Daða Bærings.
Strákarnir stóðu sig allir með mikilli prýði innan sem utan vallar og voru sjálfum sér og Leikni til sóma.
Það verður gaman að fylgjast með áfram með þessum frambærilegu leikmönnum.
Áfram Leiknir!