Aðalfundur Leiknis 2024 - Framboð
Aðalfundur Íþróttafélagsins Leiknis 2024 verður í Leiknisheimilinu, Austurbergi 1, mánudaginn 15. apríl nk. kl. 18:00.
Dagskrá aðalfundar er skv. lögum félagsins, m.a. flytur formaður skýrslu um sl. starfsár, ársreikningur verður lagður fram til samþykktar, tillögur teknar til afgreiðslu og kosið verður í stjórn félagsins. Félagsmenn eru hvattir til að mæta og taka virkan þátt í starfi Leiknis.
Rétt til fundarsetu og kosningarétt hafa allir atkvæðisbærir félagsmenn samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laganna:
- Allir iðkendur, skv. iðkendaskrá félagsins, sem náð hafa 18 ára aldri,
- leikmenn meistaraflokka félagsins og
- félagsmenn sem greiða árgjald til félagsins skv. ákvörðun stjórnar.
Félagsgjald er 2.500 kr. og hægt verður að greiða það á staðnum eða millifæra á 0537-26-16902, kt. 690476-0299. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leiknir@leiknir.com með nafni og kennitölu viðkomandi merkt félagsgjald og verður send valfrjáls krafa í heimabanka viðkomandi.
Kosning til aðalstjórnar. Tveggja ára kjörtímabili tveggja stjórnarmanna (Garðar Gunnar Ásgeirsson og Snorri Villafuerte Valsson) lýkur á aðalfundinum og fer fram kosning. Garðar Gunnar Ásgeirsson gefur kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu en það gerir Snorri Villafuerte Valsson ekki. Þá hefur Sigríður Agnes Jónasdóttir, sem var kosin til tveggja ára á síðasta ári í stjórn, ákveðið að hætta og því þarf aukalega að kjósa aðalmann til eins árs. Þá verða kosnir allt að 3 í varastjórn.
Kjörgengi til stjórnarstarfa hafa allir félagsmenn sem náð hafa 18 ára aldri. Framboð til stjórnar eða annarra kjörinna embætta félagsins samkvæmt dagskrá aðalfundar skal skila til kjörnefndar eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund eða í síðasta lagi miðvikudaginn 10. apríl nk.
Framboð til stjórnar fram komin innan tímamarka
Aron Fuego Daníelsson
Brynjar Hlöðversson
Eyjólfur Tómasson
Garðar G. Ásgeirsson
Framboð til varastjórnar fram komin innan tímamarka
Kristján Páll Jónsson
Orri Eiríksson
Ólafur Hrannar Kristjánsson
Sævar Hólm Valdimarsson