Æfingatafla vetrarins í knattspyrnu
Nú er ný vetrartafla klár.
Við ætlum að taka frí í 5. fl, 6.fl, 7.fl og 8.fl í næstu viku vegna flokkaskipta. Vetraræfingataflan tekur svo við á mánudaginn, 4. september.
Flokkaskiptin verða eins og vanalega, örlítið flókin, þar sem sumir flokkar eru enn að keppa í sínum mótum, og sumir jafnvel út september. Þeir iðkendur sem eru að fara upp í 5., 6. og 7. flokk (fædd 2013, 2015 og 2017), byrja með þeim flokkum samkvæmt vetrartöflunni mánudaginn 4. september.
Þeir iðkendur sem eru að fara upp í 2., 3. og/eða 4. flokk, æfa ýmist sér eða með nýju flokkunum sínum. Frekari upplýsingar um það verða sendar sérstaklega út á þau sem eru í þeirri stöðu.
Áfram Leiknir!