Áframhaldandi samstarf við Réttingaverkstæði Jóa
Það er okkur mikil ánægja að tilkynna að Réttingaverkstæði Jóa styrkir Leikni núverandi keppnistímabil og 2023.
Réttingaverkstæði Jóa hefur verið einn af helstu styrktaraðilum Leiknis í nokkur ár.
Við Beni, vallarstjóri fórum að skoða verkstæðið hjá Jóa síðastliðinn föstudag og er gaman sjá hversu öflugt verkstæði er starfrækt hjá þeim á Dalveginum, Kópavogi.
Þar starfa í dag 19 manns og allir menntaðir í bílaréttingum.
Endilega að hafa Réttingaverkstæði Jóa í huga ef þið þurfið að láta betrum bæta bílinn ykkar.
Á myndinni eru Jóhann eigandi og Stefán Páll, framkvæmdastjóri Leiknis.