Fara á efnissvæði
IS EN PL
Andisignature
Fréttir | 12.04.2023

Andi Hoti skrifar undir til 2025

Andi Hoti hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Nýi samningurinn gildir út leiktímabilið 2025 og er því til 3ja ára. Andi er, eins og flestir Leiknismenn þekkja, einn efnilegasti leikmaður félagsins.

Andi hefur verið með U-19 ára og U-21 árs landsliðinu síðustu ár og eru miklar vonir bundnar við kappann í treyju Leiknis í sumar. Hann var á láni hjá Aftureldingu í fyrra og þekkir deildina mætavel fyrir vikið. 

Til hamingju Andi og til hamingju Leiknir! 

#StoltBreiðholts