Fara á efnissvæði
IS EN PL
Arnor2024smaller
Fréttir | 12.04.2022

Arnór Ingi með nýjan samning

Arnór Ingi Kristinsson hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Þessi tvítugi bakvörður hafði verið samningslaus síðan um áramótin en er nú okkar út árið 2024.

Arnór kom til félagsins fyrir 2 árum frá Stjörnunni og hefur látið til sín taka bæði í Lengjudelidinni og í fyrra á meðal þeirra bestu. 

Eins og sést í viðtalinu hér að neðan var aldrei spurning um hvort, heldur hvenær þessi mál yrðu frágengin og gleðjumst við öll yfir því að geta fylgst áfram með kappanum í röðum Leiknisliðsins næstu árin.