Fara á efnissvæði
IS EN PL
Arskort
Fréttir | 09.05.2023

Árskortin komin í sölu

Árskort Leiknis eru komin í sölu fyrir Lengjudeildartímabilið sem er að hefjast. Að venju veita þau aðgang að öllum heimaleikjum félagsins í Lengjudeildinni og kaupendur sýna félaginu ómetanlegan stuðning með kaupunum. Að þessu sinni er hægt að versla kortin á nýrri vefverslun félagsins og þarmeð fara á póstlista þar sem ársmiðahafar munu fá aðgang að sérvöldu efni og sjá bakvið tjöldin hjá félaginu áður en aðrir fá efnið til sín.

Verslaðu Árskortið þitt beint frá býli hér

Það er einnig hægt að versla kortið í Stubbsappinu góða og á skrifstofu félagsins en stefnt er að því að allir korthafar noti appið til að fá aðgang á völlinn, óháð því hvernig kortið var verslað. 

Þeir sem vilja versla Gull- eða Platínumkort en vilja dreifa greiðslunum yfir lengri tíma er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra í leiknir@leiknir.com og það verður leyst. 

Félagið þakkar fyrirfram fyrir stuðninginn kæra Leiknisfólk. 

#StoltBreiðholts