Fara á efnissvæði
IS EN PL
soccer ball.jpg
Fréttir | 31.01.2021

Birgir áfram með okkur

Bakvörðurinn ungi Birgir Baldvinsson verður áfram með okkur Leiknismönnum en gerður hefur verið nýr lánssamningur við KA.

Birgir lék með Leikni á láni í fyrra og lék fimm leiki í Lengjudeildinni. Hann hefur áfram æft með Leikni og er aftur kominn með leikheimild með liðinu.

Birgir, sem varð tvítugur á dögunum. lék í leiknum gegn Val í dag og er það ánægjuefni að hafa hann áfram í okkar liði!