Fara á efnissvæði
IS EN PL
G8A8207
Fréttir | 27.06.2022

Bjarki Arnaldar í Háskólaboltann

Hinn 19 ára markvörður, Bjarki Arnaldarson, er á leið til Kaliforníu í nám og að spila fyrir skólalið Cal Poly-háskólans þarlendis.

Bjarki er aðalmarkvörður 2. flokks og varamarkvörður í meistaraflokki Leiknis en hann kom yfir í Breiðholtið frá Stjörnunni fyrir 3 árum. 

Bjarki heldur utan strax í næsta mánuði og mun samhliða knattspyrnuiðkuninni nema verkfræði í skólanum. 

Við óskum okkar manni að sjálfsögðu til hamingju með námssamninginn og ævintýrið sem framundan er. Við munum fylgjast með honum milli stanganna og í halda honum við námsefnið í vetur. 

#StoltBreiðholts