Fara á efnissvæði
IS EN PL
242949989 257590729603128 8781893655946408929 N
Fréttir | 01.10.2021

Brynjar Karl formaður körfuknattleiksdeildar Leiknis

Brynjar Karl Sigurðsson formaður körfuknattleiksdeildar Leiknis Reykjavíkur

Á fundi stjórnar Leiknis Reykjavík fyrir skömmu var Brynjar Karl Sigurðsson kosinn formaður stjórnar körfuknattleiksdeildar félagsins og hefur þegar tekið við því starfi. Brynjar Karl er vel þekktur í körfuboltaheiminum sem fyrrverandi landsliðsmaður og öflugur þjálfari.

„Við hjá Leikni erum mjög spennt að fá Brynjar Karl í hópinn og vinna með honum að því að veita börnum Efra-Breiðholts aðgang að körfuboltaíþróttinni,“ segir Stefán Páll Magnússon, framkvæmdastjóri Leiknis. „Leiknir hefur sett stefnuna á að verða hverfisfélag Efra-Breiðholts og er að fjölga deildum hjá félaginu. Körfuboltadeildin hefur nú verið endurvakin og verður öflug viðbót við íþróttaframboðið hjá félaginu. Brynjar Karl hefur unnið frábært starf fyrir körfuboltaíþróttina hvar sem hann hefur komið. Hann hefur lagt áherslu á að valdaefla stúlkur og unga Íslendinga af erlendum uppruna. Síðarnefndi hópurinn er stór í okkar hverfi og viljum við læra af reynslu Brynjars Karls.“

„Ég er fæddur og uppalinn í Fellunum og íþróttaiðkun mín hófst hjá Leikni,“ segir Brynjar Karl. „Spennan og tilhlökkunin er mikil því í mörg ár hef ég rennt hýru augu til þess að koma heim og til þess að starfa með unga fólkinu í Efra-Breiðholti. Ég hef fylgst af aðdáun með þeim mikla anda og dugnaði sem ríkir hjá félaginu.“