Fara á efnissvæði
IS EN PL
IMG_0804.jpg
Fréttir | 26.01.2021

Davíð Júlían og Shkelzen á U17 æfingar

Hópur hefur verið valinn fyrir úrtaksæfingar hjá U17 ára landsliði karla.

Æfingarnar fara fram dagana 1.-3. febrúar og verða þær í Skessunni í Hafnarfirði. Davíð Snorri Jónasson hefur valið 26 leikmenn frá 16 félögum.

Tveir leikmenn frá Leikni eru í hópnum; Davíð Júlían Jónsson og Shkelzen Veseli. Báðir eru fæddir 2004 og hafa þeir verið að spila með meistaraflokki í Reykjavíkurmótinu og leikið mjög vel.

Shkelzen lék fjóra leiki í deild og bikar með meistaraflokki síðasta sumar.