Fara á efnissvæði
IS EN PL
Inshot 20220423 140653606
Fréttir | 23.04.2022

Emil Berger framlengir

Þær gleðifréttir berast nú úr 111 að Svíinn okkar knái hefur framlengt samningi sínum við félagið og er hann því okkar út næsta leiktímabil í það minnsta.

Emil Berger kom til Leiknis fyrir síðasta leiktímabil og varð strax lykilmaður í miðjuspili liðsins. Hann er með gríðarlega sendingargetu og sér völlinn einstaklega vel. Sá Leiknismaður er ekki til sem sér eftir komu Emils til félagsins og er það mjög sterkt fyrir félagið að vera búið að tryggja þjónustu hans út næsta tímabil í það minnsta. Það sýnir að menn eru ekki að tjalda til einnar nætur. 

Í spjalli við Leiknisljónin af þessu tilefni lýsir Emil þessu sem einfaldri ákvörðun enda líður honum vel á Íslandi og í búningsklefanum og hefur mikla trú á þeirri vegferð sem félagið er á. 

Frábært veganesti inn í fyrsta heimaleik í Bestu deildinni sem er einmitt á grasvellinum á morgun. Ekki láta þig vanta!