Fara á efnissvæði
IS EN PL
Liðsheild
Fréttir | 31.01.2021

Fjölmargir jákvæðir punktar gegn Íslandsmeisturunum

Leiknir lék sinn síðasta leik í Reykjavíkurmótinu þegar keppt var gegn Val á Hlíðarenda í dag, sunnudag. Íslandsmeistarar Vals unnu 3-2 sigur en það voru Dagur Austmann og fyrirliðinn Sævar Atli Magnússon sem skoruðu mörk okkar liðs í leiknum.

Valsmenn eru komnir í úrslitaleik mótsins en þeir hafa farið með himinskautum. Leiknir getur þó tekið ansi margt jákvætt úr leiknum í dag og úr þessum undirbúningsleikjum til þessa.

Ungir leikmenn sem hafa fengið tækifærið hafa gripið það með báðum höndum og liðið átt marga góða kafla. Ljóst er að leikirnir hafa nýst vel í að móta liðið fyrir þetta stóra tímabil sem framundan er.

Hér má sjá skýrslu leiksins af heimasíðu KSÍ og nánari umfjöllun má lesa á heimasíðu Leiknisljónanna.

Á heimasvæði Leiknis á Facebook má sjá myndir sem Haukur Gunnarsson tók á Hlíðarenda.

Valsmenn sýndu leikinn beint á Youtube og má finna skemmtilegasta kafla hans með því að smella hérna.