Flott þróunarmót UEFA að baki fyrir Karan og U-15 landsliðið
Karan Gurung, einn mesta spennandi leikmaðurinn í frjóu uppeldisstarfi félagsins, er á heimleið frá Slóveníu eftir flott þróunarmót á vegum UEFA fyrir U-15 ára landslið Íslands.
Karan og félagar enduðu í öðru sæti á eftir heimliðinu á markatölunni einni. Okkar maður skoraði einkar smekklegt mark í leik við N-Írland og býr vonandi vel að reynslunni sem hann hlaut í þessu verkefni.
Hægt er að lesa meira um mótið á hér á heimasíðu KSÍ.
#StoltBreiðholts