Fara á efnissvæði
IS EN PL
Ffram
Fréttir | 28.04.2022

Fram í bikarnum

Í hádeginu var dregið í 32-liða Mjólkurbikarsins. Leiknir fékk Framara úr pottinum á útivelli og verður því um Bestudeildar-slag að ræða. Leikurinn er settur á fimmtudaginn 26.maí í Úlfarársdal en líklegra þykir að hann verði háður í Safamýrinni.

Það fer ekki framhjá nokkrum Leiknismanni að saga félagsins er ekki glæst í þessari keppni en félagið hefur nú verið iðið við að endurskrifa söguna og hækka væntingar svo bikarkeppnin er engin undantekning þar. Gamla stórveldið skal sigrað af því nýja eftir tæpan mánuð. Merkið dagatölin ykkar, vinsamlegast. 

#StoltBreiðholts