Fara á efnissvæði
IS EN PL
Inshot 20220523 182438120
Fréttir | 23.05.2022

Freysi og Sævar komnir í efstu deild

Okkar menn í Danaríki, þeir Freyr Alexandersson og Sævar Atli Magnússon, hafa tryggt sæti sitt með Lyngby í deild þeirra bestu þar ytra með jafntefli á útivelli í kvöld.

Þetta ætti ekki að koma nokkrum Leiknismanni á óvart enda áttu þessir tveir, í sitthvoru lagi þó, stóran þátt í þeim skiptum sem uppeldisfélagið þeirra hefur komist upp úr næstefstu deild hér heima. 

Rétt eins og hjá Leikni, hefur Freyr ekki haft djúpa vasa að leita í og því ekki endilega búist við að honum tækist að keyra liðið beint upp í Superliga í fyrstu tilraun en það er nú orðin raunin með fógetann okkar að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku. 

Mikil ánægja hefur ríkt um störf stjórans og framlengdi félagið samninginn við Freysa um 3 ár í apríl. Sævar Atli hefur spilað í heilum 29 leikjum fyrir félagið hingað til þó meirihluti þeirra hafi verið af bekknum hingað til. Hann hefur skorað 4 mörk í vetur og gefið 3 stoðsendingar. 

Íþróttafélagið Leiknir óskar okkar mönnum og öllum vinum okkar í Lyngby til hamingju með árangurinn og getum ekki beðið eftir að sjá ykkur berjast við risaklúbbana í efstu deild eins og þið voruð vanir hér heima. 

#StoltBreiðholts
#SammenForLyngby