Geggjaður Guy í jafntefli í Árbænum
Markvörður okkar, Guy Smit, var maður leiksins þegar Fylkir og Leiknir gerðu markalaust jafntefli í 15. umferð Pepsi Max-deildarinnar í Árbænum. Hann átti frábæran leik.
Sjáðu myndskeið af frammistöðu hans (Vísir)
Okkar menn þurftu að dúsa í sóttkví í aðdraganda leiksins og það sást aðeins á spilamennskunni þegar líða fór á leikinn.
Við virðum stigið og búum okkur undir hörkuleik gegn Íslandsmeisturum Vals á sunnudaginn á Domusnova-vellinum. Flautað verður til leiks klukkan 17:00.
Sjáðu skýrslu leiksins af Fótbolta.net