Fara á efnissvæði
IS EN PL
Fréttir | 07.06.2025

Heimaleikur gegn Völsungi á mánudaginn

Nýliðarnir í Völsungi frá Húsavík mæta í heimsókn í Breiðholtið. Leikurinn hefst klukkan 16:00 á annan í Hvítasunnu, mánudaginn 9. júní. Miðasalan er sem fyrr á Stubbi, hérna er hægt að kaupa miða.

Leiknir vann góðan 2:1 sigur á Fylki í síðasta leik, í fyrsta leiknum eftir að nýr þjálfari tók við Leiknisliðinu. Dagur Ingi Hammer og Þorsteinn Emil Jónsson skoruðu þá mörk Leiknis. Við þennan sigur fór liðið upp í 10. sæti og er nú með fjögur stig eftir sex leiki.

Völsungur er í 7. sætinu með níu stig eftir að hafa unnið þrjá leiki og tapað þremur. Markatala Völsungs er 9:13. Völsungur vann Selfoss á útivelli í þriðju umferð, Fjölni á heimavelli í fjórðu umferð og svo Þór á Akureyri í síðustu umferð. Fyrsti leikur Völsungs á tímabilinu var í Breiðholtinu þegar liðið tapaði fyrir ÍR. Að auki hefur Völsungur tapað útileikjum gegn Njarðvík og Þrótti.

Markahæstu leikmenn Völsungs á tímabilinu er gamla kempan Elfar Árni Aðalsteinsson sem hefur skorað 3 mörk. Arnar Pálmi Kristjánsson er með 2 mörk en Ismael Salmi Yagoub, Jakob Héðinn Róbertsson og Rafnar Máni Gunnarsson hafa skorað 1 mark hver auk þess sem eitt mark var sjálfsmark.

Fyrir þetta tímabil var nýliðunum frá Húsavík spáð 12. sætinu en þeir hafa sýnt það að þeir eru ekki bara mættir í Lengjudeildina til að vera með heldur til að vinna fótboltaleiki. Leiknisliðið þarf því á góðum stuðningi að halda í þetta verkefni á mánudaginn.

 

Áfram Leiknir!