Hlaðvarp: Kveðjustund með Sigga
Það er komið nýtt Leiknisljónavarp í loftið og er það tæplega 90 mínútna spjall við Sigga Höskulds sem hvarf á braut í gær eftir rúm 4 ár við þjálfarastörf hjá félaginu. Það er óhætt að segja að okkar maður opnaði sig um tíma sinn hjá félaginu, um leikmenn og framhaldið bæði hjá sér og okkar ástkæra félagi.
Siggi verður ávallt í miklum mætum í ghettóinu og það kemur fram að sú tilfinning er gagnkvæm. Þetta er eitt Ljónavarp sem enginn sannur Leiknismaður mun láta framhjá sér fara.
Þú getur fundið hlaðvarpið á öllum helstu veitum og hér á netinu líka.
Góða skemmtun!
#StoltBreiðholts