Fara á efnissvæði
IS EN PL
Screenshot 20220628 235652 Gallery
Fréttir | 28.06.2022

Hlaðvarpsspjall við goðsögnina Halldór Kristinn

Halldór Kristinn Halldórsson var fyrir nokkrum vikum vígður inn í Heiðurshöll Leiknis, HOFIÐ. Við erum loksins búin að ná tali af kappanum og fara yfir stórskemmtilegan feril hans meðal annars.

Dóri fór yfir alls kyns vitleysu í búningsklefanum, hliðarsporin í Val og Keflavík og hvernig það er að ala börnin sín upp í ÍR. 

Þið getið tætt þetta eyrnakonfekt í ykkur á öllum hlaðvarpsveitum og líka hér gegnum netið: https://www.leiknisljonin.net/podcast/episode/7e1dcf82/leiknishofid-halldor-kristinn-halldorsson

Það er stutt í næsta þátt og því mikilvægt að fresta ekki hlustun enda nóg Leiknistengt framundan á næstunni. 

#StoltBreiðholts 
#HOF