Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiknirleiknir
Fréttir | 18.05.2021

Íslandsmeistararnir heimsóttir á föstudag

Eftir flottan sigur gegn Fylki er komið að því að heimsækja sjálfa Íslandsmeistara Vals á Hlíðarenda. Leikurinn verður klukkan 20:15 á föstudagskvöld, 21. maí.

Valsmenn eru ósigraðir í deildinni hingað til og má búast við erfiðum leik. Við Leiknisfólk eigum þó góðar minningar frá þessum velli en síðast þegar við vorum í efstu deild mættum við þangað í fyrstu umferð og unnum heldur betur eftirminnilegan sigur.

föstudagur 21. maí
20:15 Valur - Leiknir (Origo völlurinn)