Íslandsmeistararnir mæta á sunnudag
Á sunnudaginn koma Íslandsmeistarar Vals í heimsókn á Domusnova-völlinn. Leikurinn verður klukkan 17:00.
Valsmenn tróna á toppi Pepsi Max-deildarinnar en þeir unnu nauman 1-0 sigur þegar liðin áttust við á Hlíðarenda í fyrri umferðinni.
Mætum öll og styðjum strákana!
Stubbur sér um miðasölu.