Fara á efnissvæði
IS EN PL
Jonni2024
Fréttir | 15.07.2023

Jón Hrafn framlengir út næsta sumar

Jón Hrafn Barkarson hefur framlengt samningi sínum við Leikni út næsta leiktímabil. Þessi spræki 19 ára kantmaður hefur verið að koma sterkur inn á þessu tímabili og því eru þetta frábærar fréttir fyrir það starf sem Fúsi og Donni eru að vinna með hópinn og kemur í kjölfar þess að tvö önnur ungstirni framlengdu í síðustu viku, þeir Davíð Júlían og Róbert Quental.

Jonni er kominn í 28 leiki í deild og bikar með meistaraflokki félagsins, þar af 9 á þessu tímabili. Hann ól manninn í Garðabænum hjá Stjörnunni en er búinn að vera með okkur í Breiðholtinu síðustu 3 ár við góðan orðstír og virðist vera að blómstra núna í og við byrjunarliðið í baráttunni í Lengjudeildinni. 

Við óskum Jonna og öllum hjá félaginu til hamingju með þennan ráðahag og fulla ferð áfram upp töfluna með þetta vopn í búrinu okkar. 

#StoltBreiðholts