Kaj Leo til Njarðvíkur
Kaj Leo í Bartalsstovu hefur komist að samkomulagi við Leikni um riftingu á samningi við félagið og er genginn til liðs við Njarðvíkinga.
Kaj Leo spilaði í 10 leikjum fyrir Leikni en heldur nú suður með sjó til að leggja sitt af mörkum í baráttunni sem þar er framundan. Við óskum kappanum góðs gengis þar og þökkum honum kærlega fyrir kynnin.
#StoltBreiðholts