Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiiknir
Fréttir | 10.05.2021

Leikið við KA á Dalvík á miðvikudag

Næsti leikur Leiknis í Pepsi Max-deildinni verður útileikur gegn KA í þriðju umferð deildarinnar.

Þar sem Greifavöllurinn er ekki klár í slaginn hefur leikurinn verið færður á gervigrasvöllinn á Dalvík sem er allur hinn glæsilegasti.

Leikurinn verður á miðvikudaginn klukkan 17:30. KA hefur farið býsna vel af stað í deildinni og er með fjögur stig en liðið vann öflugan sigur gegn KR síðasta föstudag.

miðvikudagur 12. maí
17:30 KA - Leiknir (Dalvíkurvöllur)