Fara á efnissvæði
IS EN PL
Vsafturelding
Fréttir | 23.06.2023

Leiknir 2-2 Afturelding

Annað jafnteflið í röð varð að veruleika í Lengjudeildinni hjá okkar mönnum í kvöld þegar ósigrað topplið Aftureldingar kom í heimsókn á Domusnovavöllinn.

Danni Finns skoraði bæði mörk Leiknis en jöfnunarmarkið skoraði hann aðeins mínútu eftir að Mosfellingar höfðu náð forrystu á 68. mínútu. Róbert Quental Árnason átti þá glæsilega sendingu inn fyrir og Danni, sem er í fantaformi, lék laglega á varnarmúrinn sem var á hælunum og setti hann stöngin inn á nær. 

Það er ekki heiglum hent að fá nokkuð úr leik við lið Magga Más og virðum við stigið og segjum áfram gakk. 

#StoltBreiðholts