Fara á efnissvæði
IS EN PL
Saevarernir
Fréttir | 10.06.2023

Leiknir 2-2 Grindavík

Okkar menn unnu svokallaðann karaktersigur í dag á Domusnovavellinum þegar þeim tókst að tryggja 1 stig gegn sterku liði Grindavíkur.

Eftir vondann skell síðustu helgi á Seltjarnarnesi var viðbúið að margir væru búnir að afskrifa þennan leik og eftir að gestirnir komust í 0-2 með mörkum sitthvorum megin við hálfleiksflautuna leit allt út fyrir það. En baráttan hélt áfram og okkar menn uppskáru mörk frá Omar Sowe og svo Róberti Haukssyni þegar aðeins 4 mínútur lifðu af venjulegum leiktíma. 

Það var mikilvægt að fá eitthvað út úr þessum leik og er það eitthvað til að byggja á. 

Nú er það annar erfiður leikur í næstu umferð gegn toppliði Aftureldingar en það eru næstum því tvær vikur í hann og því nægur tími fyrir menn að undirbúa sig. 

 

#StoltBreiðholts