Fara á efnissvæði
IS EN PL
BNCVzfxCQAAkmwZ.jpg large.jpg
Fréttir | 21.01.2021

Leikurinn gegn Víkingi sýndur beint á þriðjudag

Leiknir hefur unnið báða leiki sína í Reykjavíkurmótinu og nú er komið að því að mæta ríkjandi bikarmeisturum í Víkingi Reykjavík á þriðjudagskvöld, 26. janúar.

Leikurinn fer fram á heimavelli hamingjunnar í Fossvogi og hefst klukkan 19:00. Áhorfendabann er enn í gildi en LeiknirTV ætlar að sýna leikinn í þráðbeinni.

Hægt verður að nálgast leikinn á þessari rás á Youtube (ertu búin/n að negla við Subsribe?)

Hér má annars sjá stöðuna og leikjadagskrána í riðli okkar í Reykjavíkurmótinu.