Fara á efnissvæði
IS EN PL
Lokahof 2024
Fréttir | 05.09.2024

Lokahóf 2024

Leiknir spilar síðasta leik sinn í Lengjudeildinni í ár á heimavelli gegn ÍBV þann 14. september næstkomandi. Það sama kvöld ætlum við að halda lokahófið okkar og fagna saman þessu tímabili sem er að ljúka. Leiknishúsið opnar klukkan 20:00.

 

Dagskrá Lokahófsins:

- Meistaraflokksþjálfarar velja leikmann ársins

- Meistaraflokksþjálfarar velja efnilegasta leikmanninn

- Ávarp frá þjálfara meistaraflokks

- Besti leikmaður að mati stuðningsmanna kynntur

- Frumsýning á Lokahófsmyndbandinu 2024

 

Lokaumferð Lengjudeildarinnar verður spiluð fyrr um daginn. ÍBV mætir í heimsókn í leik sem byrjar klukkan 14:00. Fyrir þann leik verður hægt að mæta í Leiknishús. Leiknissalurinn opnar klukkan 12:00, þar verður hægt að fá borgara og gos auk þess sem hægt verður að vígja glænýtt píluspjald og horfa á enska boltann.

 

Áfram Leiknir, sjáumst laugardaginn 14. september og fögnum saman!