Fara á efnissvæði
IS EN PL
Emil Berger
Fréttir | 10.08.2021

Magnaður sigur gegn Val

Á sunnudag vann Leiknir hreint magnaðan 1-0 sigur gegn Íslandsmeisturum Vals. Sigur sem skráist sem einn sá besti í sögu félagsins.

Leiknisliðið skapaði sér fleiri hættuleg færi en Valsmenn og vann verðskuldaðan sigur þar sem Manga Escobar skoraði eina markið. Sending Danna Finns hleypti Manga í gegn og hann kláraði ákaflega vel.

Enn og aftur var varnarleikur Leiknis frábær en liðið hefur aðeins fengið eitt mark á sig í síðustu fimm leikjum. Vel gert.

Hér má sjá skýrslu leiksins frá Fótbolta.net.

Viðtöl: Siggi Höskulds er ekkert eðlilega stoltur af liðinu og Binni Hlö er byrjaður að láta sig dreyma um Evrópukeppni.

Leiknisliðið er komið upp í 21 stig eftir sigurinn en hér má sjá stöðuna af vef KSÍ.