Markaleikur gegn FH
Síðasti æfingaleikur undirbúningstímabilsins fór fram á Domusnovavellinum í kvöld og lauk honum með sigri gestanna í FH, 3-4.
Hafnfirðingarnir skoruðu fyrst og Leiknismenn jöfnuðu. Liðin skoruðu svo á víxl þartil gestirnir, nánar tiltekið Máni, nokkur, Austmann, skoraði sigurmarkið þegar 5 mínútur voru til leiksloka.
Þeir Máni og Vuk Óskar komu inná fyrir FH í hálfleik og skoraði Vuk 2. mark gestanna.
Fyrir Leikni skoraði Maciej tvö mörk og Róbert Hauksson skoraði þriðja markið.
Nú er vika í Bestu deildina á Dalvík og spenningurinn magnast.
#StoltBreiðholts