Fara á efnissvæði
IS EN PL
Sviðsmynd
Fréttir | 24.05.2021

Naumt tap á Hlíðarenda

Valur 1 - 0 Leiknir
1-0 Patrick Pedersen ('86)

Síðasta föstudagskvöld tapaði Leiknir naumlega fyrir Íslandsmeisturum Vals á Hlíðarenda. Varnarleikur Leiknis var flottur í leiknum en Valsmenn náðu að kreista fram sigurmark í lokin. Svekkjandi niðurstaða.

Sævar Atli fyrirliði spilaði ekki í þessum leik vegna meiðsla.

Róbert Quental Árnason, sem hélt upp á 16 ára afmæli sitt um liðna helgi, lék sinn fyrsta leik í Pepsi Max-deildinni en hann kom inn á 67. mínútu.

Byrjunarlið Leiknis: Guy (m); Gyrðir, Binni Hlö, Bjarki (f), Dagur; Ernir, Daði, Emil; Manga, Máni, Danni. (Komu af bekknum: Birgir, Árni Elvar, Arnór Robbi)

Sjáðu skýrsluna af Fótbolti.net

Viðtal við Sigga Höskulds