Fara á efnissvæði
IS EN PL
Leiknir 01
Fréttir | 19.06.2025

Njarðvík heima í níundu umferð

Leiknir hefur núna náð í tvo sigra í síðustu þremur leikjum og unnið sig upp töfluna en liðið og allir í kringum liðið vilja sjá meira af því sama. Í níundu umferð koma öflugir Njarðvíkingar, liðið í öðru sæti deildarinnar, í heimsókn í Efra-Breiðholtið. Leiknir-Njarðvík hefst á Domusnovavellinum klukkan 19:15 föstudaginn 20. júní. Við hvetjum stuðningsfólk Leiknis til að kaupa miða á Stubbi og mæta snemma í Leiknishúsið því Ágúst Gylfason þjálfari mun kynna liðið fyrir stuðningsfólki klukkutíma fyrir leik.

Leiknir er í 10. sæti deildarinnar eftir 8 umferðir, með tvo sigra, eitt jafntefli og fimm töp. Markatalan er 9:21, markahæsti leikmaður Leiknis er Dagur Ingi Hammer Gunnarsson með 4 mörk. Shkelzen Veseli hefur skorað tvö mörk og Axel Freyr, Þorsteinn Emil og Djordje Vladisavljevic eitt mark hver. 

Njarðvík er eins og áður sagði í 2. sæti deildarinnar með 16 stig eftir 8 umferðir. Liðið hefur ekki enn tapað leik á tímabilinu heldur unnið fjóra og gert fjögur jafntefli. Markatala Njarðvíkur er 20:8. Þeirra markahæsti leikmaður á tímabilinu er Oumar Diouck með sex mörk. Þar á eftir koma Amin Cosic með fjögur, Dominik Radic með þrjú, Tómas Bjarki Jónsson með tvö og fimm leikmenn hafa skorað eitt mark hver. Í síðasta leik unnu Njarðvíkingar 3:1 sigur á Þór eftir að hafa lent undir á 61. mínútu.

Leiknir og Njarðvík hafa 21 sinni mæst í meistaraflokki karla í fótbolta. Í þeim viðureignum hefur Leiknir unnið 11 leiki, Njarðvík unnið 7 leiki og þrír hafa endað með jafntefli. Markatalan í leikjunum er 42:26, Leikni í hag.

Liðin eru nú saman í Lengjudeildina þriðja árið í röð. Í fyrra vann Njarðvík báða leikina en árið þar á undan vann Leiknir báða leiki sumarsins.

Nú viljum við sjá góða baráttu og flottan leik hjá okkar mönnum með góðri stemningu og stuðningi í stúkunni.

 

Áfram Leiknir!

Miðasalan á Stubbi fyrir þennan leik.

Ársmiðasala Leiknis.

Vefverslun Leiknis.