Fara á efnissvæði
IS EN PL
Indrithoti
Fréttir | 14.04.2023

Nýr markvörður í hópinn

Leiknir heldur áfram að styrkja sig í aðdraganda Lengjudeildarinnar. Á dögunum slóst í hópinn Indrit Hoti á lánssamningi frá Haukum.

Indrit er 18 ára markvörður með meistaraflokksreynslu úr Hafnarfirðinum en hann kom þangað frá Breiðablik á sínum tíma. Viktor Freyr er að sjálfsögðu valkostur númer eitt milli stanganna en koma Indrit veitir honum bæði samkeppni og hópnum aukna breidd fyrir átökin sem framundan eru. 

Við bjóðum Indrit Hoti velkominn í Breiðholtið og Leikni. 

#StoltBreiðholts