Fara á efnissvæði
IS EN PL
Treyjannnn
Fréttir | 11.04.2022

Ódýrar treyjur fyrir sumarið

Margir héldu að ný Leiknistreyja myndi líta dagsins ljós fyrir komandi tímabil en svo verður ekki. Í staðinn verður glæný treyja frumsýnd næsta vor þegar félagið verður 50 ára. En ef þig vantar rendur fyrir þetta sumar, erum við með ódýran og góðan retro kost fyrir þig.

Sendingin sem er á leiðinni til landsins af núverandi treyju mun öll vera nýtt undir iðkendur hjá félaginu og því verður hún ekki í boði í bráð fyrir stuðningsmenn hjá félaginu eða í Errea umboðinu. 

Hins vegar höfum við tryggt í umboðssölu allar treyjurnar sem eftir eru á jarðríki frá tímabilinu á undan (sjá mynd). Og nú geta stuðningsmenn og börn tryggt sér þessa Retro treyju með síðum ermum og kraga í vor og haustleikina á litlar 5000 krónur fyrir fullorðinsstærðir og 4000 kall fyrir barnastærðir. 

Ef þú hefur áhuga á að tryggja þér eitt eða fleiri eintök á slikk, hafðu endilega samband í gegnum Facebook messenger síðu félagsins eða með tölvupósti á ljonavarpid@leiknisljonin.net en Ljónin ætla að keyra treyjurnar út og gera fólki kleift að máta á þriðjudags og miðvikudagskvöld. Allt til að sjá sem flesta í flottum röndum á vellinum og víðar í sumar. 

#HverfiðKallar

#StoltBreiðholts