Fara á efnissvæði
IS EN PL
Framlogo (1)
Fréttir | 10.01.2023

Reykjavíkurmótið hefst á fimmtudag

Framarar koma í heimsókn á Domusnovavöllinn á fimmtudaginn næstkomandi þegar boltinn fer að rúlla í Reykjavíkurmóti ársins hjá meistaraflokki.

Það fór ekki framhjá nokkrum Leiknismanni að spútniklið þeirra bláklæddu fór illa með okkar menn þegar liðin mættust í deild og bikar síðasta sumar. Nú er tækifæri til að ná fram hefndum á teppinu í Breiðholtinu góða og í leiðinni skoða leikmannahópinn eins og hann stendur í dag. 

Leiknir og Fram eru í B-riðli ásamt Fjölni og Val. Við heimsækjum einmitt Sigga Höskulds og nýja félagið hans í 105 á föstudag í næstu viku. 

Sparkað verður af stað klukkan 17:30 og eru allir velkomnir á völlinn...án endurgjalds. 

#StoltBreiðholts